Brand segir samþykki grundvallaratriði í kynlífi
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand sagði fyrir dómi í dag að samþykki væri „grundvallaratriði“ í kynlífi. Hann gaf þá í fyrsta sinn skýrslu fyrir dómi í máli þar sem hann er meðal annars ákærður fyrir nauðganir.
Brand varð þekktur sem sjónvarps- og útvarpsmaður á fyrsta áratug aldarinnar og var þá með framsæknar stjórnmálaskoðanir. Síðan hefur hann skapað sér nýja ímynd sem boðberi íhaldssemi og trúar og á milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum.
Brand, sem er 51 árs, hefur neitað sök í öllum ákæruliðum málsins. Hann svaraði hátt „nei“ þegar verjandi hans spurði hvort hann hefði framið þær þrjár nauðganir, þrjú önnur kynferðisbrot og eina tilraun til kynferðisbrots sem hann er ákærður fyrir.
Ásakanir frá sex konum
Aðalmeðferð málsins fyrir kviðdómi við Southwark Crown Court í Lundúnum hófst fyrir tveimur vikum. Þar hafa komið fram ásakanir sex kvenna vegna atvika á árunum 1999 til 2009. Ákæruvaldið hefur lýst Brand sem „kynferðislegu rándýri“.
Lífstíðarfangelsi er þyngsta refsing við nauðgun í Bretlandi.
Brand, sem varð landsþekktur sem þáttastjórnandi hjá MTV, Channel 4 og BBC, sagði fyrir dómi að allt líf sitt hefði verið „undirlagt af þessum atburðum, þessum ásökunum, þessum sakargiftum“.
Hann kvaðst hafa verið „nokkuð þekktur“ árið 2004. Árið 2009, þegar hann hóf samband við poppstjörnuna Katy Perry, sem hann var um skamma hríð kvæntur, hefði frægðin hins vegar orðið „gríðarleg“.
Hann haslaði sér einnig völl í Hollywood og lék aðalhlutverk í nokkrum vinsælum kvikmyndum.
Brand hefur nú kvænst á ný, á börn og býr í Flórída. Hann hefur aflað sér nýs fylgjendahóps sem áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og eru milljónir áskrifendur að efni hans.
Brand hafði áður sagt lögreglu að hann myndi ekki eftir neinni kvennanna en viðurkenndi í dag að hann myndi eftir sumum atvikanna.
Kveðst ekki hafa verið í neinum vafa um samþykki
Hann kvaðst muna eftir að hafa hitt fyrstu konuna sem kærði hann. Hún sakar hann um að hafa nauðgað sér árið 1999 eftir kabarettsýningu í Bournemouth á Suður-Englandi, þegar flokksþing Verkamannaflokksins fór þar fram.
Hann sagðist hafa laðast að henni og „vonast til og talið að það væru að minnsta kosti einhverjar líkur á kynlífi“.
Hann hélt því eindregið fram að hún hefði samþykkt kynlífið og sagðist „alls ekki hafa verið í neinum vafa“ um það.
„Samþykki er grundvallaratriði, ómissandi, nauðsynlegt og raunar að mörgu leyti mikilvægara en kynlífið sjálft,“ sagði hann.
Hann sagðist hafa notað smokk, því „þannig stundaði fólk kynlíf árið 1999“.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗