Fór í brjóstalyftingu eftir seinna barnið

Jennifer Lawrence á verðlaunahátíð í janúar.

Jennifer Lawrence á verðlaunahátíð í janúar. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence hefur gengist undir brjóstalyftingu eftir fæðingu seinna barns síns. 

Lawrence, sem er 36 ára, hefur áður rætt opinskátt um þær breytingar sem urðu á líkama hennar við barneignir. Í viðtali við The New Yorker í fyrra sagði hún mikinn mun hafa verið á því hvernig líkaminn jafnaði sig eftir meðgöngurnar tvær.

„Nánast allt fór í fyrra horf eftir fyrra barnið. Eftir það seinna fór ekkert í fyrra horf,“ sagði hún.

Jennifer Lawrence segir líkamann hafa breyst meira eftir seinni meðgönguna en þá fyrri. AFP/Jon Kopaloff

„Ég vil vera kynþokkafull mamma“

Í sama viðtali viðurkenndi Lawrence að starfið hefði haft áhrif á ákvörðun hennar um að fara í aðgerðina. Hún taldi þó að hún hefði einnig látið verða af henni þótt hún væri ekki leikkona.

„Kannski hefði mér ekki legið jafnmikið á að komast að. En ég held samt að ég hefði gert það.“

Í viðtali við The Cut ræðir hún meðal annars um útlitið og hversdagslífið sem tveggja barna móðir.

„Ég vil vera kynþokkafull mamma,“ segir hún. „Þegar ég skutla börnunum vil ég líta út eins og kona sem hefur allt á hreinu, jafnvel þótt ég sé nývöknuð og hafi ekkert á hreinu.“

Lawrence á tvo syni með eiginmanni sínum, Cooke Maroney. Þau gengu í hjónaband í október 2019.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅