Fékk hlýjar móttökur eftir hörð ummæli systur sinnar
Jack og Sharon Osbourne hittu Aimee á dögunum eftir að Kelly greindi frá ósætti þeirra systra. Samsett mynd/AFP/Jon Kopaloff/Skjáskot/instagram
Sharon Osbourne og sonur hennar, Jack, hittu Aimee Osbourne í Los Angeles á mánudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem sést til Aimee opinberlega eftir að yngri systir hennar, Kelly, greindi frá því að hún hefði slitið sambandi við hana.
Vel fór á með þremenningunum og föðmuðust systkinin eftir samverustundina. Aimee sést sjaldan opinberlega og hefur lengi kosið að halda sig utan sviðsljóssins.
Kelly var ekki með í för, en eins og mbl.is hefur áður greint frá sagði hún að þær systur hefðu ekki talast við um nokkurt skeið. Þær væru afar ólíkar og hún sæi ekki fram á að sættir næðust.
Vildi ekki taka þátt í þáttunum
Aimee er elsta barn Sharon og tónlistarmannsins Ozzys Osbourne sáluga. Hún kaus að taka ekki þátt í raunveruleikaþáttunum The Osbournes, sem gerðu yngri systkini hennar heimsfræg eftir að þeir hófu göngu sína á MTV árið 2002.
Hún flutti að heiman sextán ára gömul þegar tökuliðið kom á heimili fjölskyldunnar. Í eldra viðtali við The Independent sagðist hún enn hafa verið að átta sig á því hver hún væri og ekki viljað að það ferli yrði að sjónvarpsefni.
„Ég vildi vernda sjálfa mig, foreldra mína og systkini mín líka,“ sagði Aimee.
Raunveruleikaþættirnir The Osbournes voru sýndir á MTV á árunum 2002 til 2005. Aimee, elsta dóttir Sharon og Ozzys, vildi ekki taka þátt. AFP
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
