David Walliams sparkað úr nýrri kvikmynd

David Walliams hefur alfarið hafnað ásökunum um óviðeigandi hegðun.

Breski grínistinn og barnabókahöfundurinn David Walliams verður ekki með í væntanlegri kvikmynd eftir að ásakanir um óviðeigandi hegðun hans komu fram.

Frá þessu greinir bandaríski fréttamiðillinn TMZ og hefur eftir heimildarmanni sem tengist framleiðslu kvikmyndarinnar The Road to Nevermore að ákveðið hafi verið að hætta við þátttöku Walliams.

Undirbúningur myndarinnar er enn á byrjunarstigi og hafði Walliams aðeins verið á bráðabirgðalista yfir leikara. Hann hafði ekki skrifað undir samning um hlutverkið og hefur nafn hans nú verið fjarlægt af leikaralistanum á kvikmyndavefnum IMDb.

Útgáfufyrirtækið sleit samstarfinu

Walliams, sem er meðal annars þekktur fyrir gamanþættina Little Britain, hefur sætt ásökunum um óviðeigandi hegðun í garð kvenkyns starfsmanna bókaútgáfunnar HarperCollins.

Í desember í fyrra tilkynnti útgáfufyrirtækið að það myndi ekki gefa út fleiri nýjar bækur eftir Walliams. Í september síðastliðnum staðfesti fyrirtækið jafnframt að það myndi hætta útgáfu eldri bóka hans.

Umboðsskrifstofan YMU hefur einnig hætt að koma fram fyrir hans hönd.

Walliams hefur alfarið hafnað ásökununum og sagt að honum hafi hvorki verið gerð grein fyrir þeim né gefinn kostur á að svara þeim.

TMZ hefur óskað eftir viðbrögðum frá fulltrúum Walliams en ekki fengið svar.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅