Lamar Odom kominn á OnlyFans

Lamar Odom segist enn geta komið á óvart.

Lamar Odom segist enn geta komið á óvart. AFP/Rodin Eckenroth

Fyrrverandi körfuboltastjarnan Lamar Odom hefur stofnað aðgang á áskriftarvefnum OnlyFans. Hann gefur í skyn að áskrifendur fái að kynnast nýrri hlið á honum en vill lítið gefa upp um hvers konar efni verði þar í boði.

Odom, sem er 46 ára, varð tvívegis NBA-meistari með Los Angeles Lakers en er þekktastur utan körfuboltaheimsins sem fyrrverandi eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Khloé Kardashian.

Hann kynnti aðganginn á Instagram í gær með mynd af sér berum að ofan í sundlaug ásamt hlekk á síðuna.

OnlyFans er einkum þekkt fyrir efni ætlað fullorðnum. Í kynningartexta á síðunni segist Odom ætla að leyfa fólki að kynnast sér betur en það hafi gert á körfuboltavellinum og í sjónvarpi.

Odom gefur í skyn að áskrifendur fái að kynnast nýrri hlið á honum á OnlyFans. Skjáskot/OnlyFans

Segist enn eiga ýmislegt ósagt

Í samtali við TMZ vildi Odom lítið gefa upp um hvað hann hygðist sýna áskrifendum sínum.

„Ég hef lifað ansi viðburðaríku lífi og trúið mér, ég á enn eftir að koma fólki á óvart. Ég hef alltaf verið eins og opin bók en það eru enn kaflar sem fólk hefur ekki séð,“ sagði hann.

Kærasta hans, fasteignasalinn Rachel Bradley, hefur einnig stofnað aðgang á OnlyFans. Samkvæmt TMZ kemur til greina að þau framleiði efni saman síðar.

Page Six

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅