Telja Elton styðja Brooklyn í fjölskyldudeilunni

Elton John ásamt eiginmanni sínum David Furnish í fyrra.

Elton John ásamt eiginmanni sínum David Furnish í fyrra. AFP/Apu Gomes

Tónlistarmaðurinn Elton John og eiginmaður hans, David Furnish, eru taldir hafa tekið afstöðu með Brooklyn Beckham í deilum hans við foreldra sína.

Vangavelturnar kviknuðu eftir að Brooklyn og eiginkona hans, Nicola Peltz, fögnuðu afmæli Furnish með þeim í Feneyjum.

John er guðfaðir Brooklyns og hefur verið vinur foreldra hans, Davids og Victoriu Beckham, í meira en þrjá áratugi. Áður hefur verið greint frá því að hann hafi reynt að miðla málum milli þeirra.

Eins og frægt er orðið sagði Brooklyn frá því opinberlega í janúar að hann hefði slitið öll tengsl við fjölskyldu sína. Í langri færslu á Instagram bar hann foreldra sína ýmsum sökum og hélt meðal annars fram að móðir hans hefði tekið yfir fyrsta dansinn í brúðkaupi hans og Nicolu.

Victoria og David Beckham hafa verið vinir Eltons Johns í meira en þrjá áratugi. Skjáskot/Instagram

Ummælin vöktu athygli

Brooklyn og Nicola birtu bæði myndir frá ferðinni til Feneyja, þar sem þau fögnuðu 64 ára afmæli Furnish á nýjum tónlistarstað hans, Elton’s Club.

„Kærar þakkir fyrir að fagna með okkur! Okkur þykir svo vænt um þig og Nicolu!“ skrifaði Furnish við færslu Brooklyns.

Í athugasemdum veltu fylgjendur því fyrir sér hvort David og Victoria hefðu einnig fengið boð og hvort John og Furnish hefðu tekið afstöðu með yngri hjónunum.

Ekkert í frásögninni staðfestir þó að foreldrum Brooklyns hafi ekki verið boðið.

Brooklyn og Nicola hafa áfram varið tíma með John og Furnish þrátt fyrir fjölskyldudeilurnar. Í sumar dvöldu þau meðal annars hjá þeim í Suður-Frakklandi.

Daily Mail

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅