Tökur Áramótaskaupsins á fullu
Tökur á Skaupinu fóru fram við Ráðhúsið í gær. Þar sást í hnakkann á óþekktri leikkonu sem minnir óneitanlega á Hildi borgarstjóra. mbl.is/Árni Sæberg
Tökur á Áramótaskaupinu fara vel af stað, að sögn Allans Sigurðssonar en hann leikstýrir Skaupinu ásamt Hannesi Þór Arasyni. Framleiðslufyrirtæki þeirra, Atlavík, framleiðir þáttinn.
„Það er ógeðslega gaman að vera í verkefni þar sem maður hlær allan daginn. Það eru forréttindi,“ segir Allan við Morgunblaðið um framleiðsluna sem er á fullu þessa vikuna og í næstu viku. Allan segir tökurnar fara fram í törnum enda verði að taka mið af því hvað kemur upp í fréttum og skrifa handritið eftir því.
Leikstjóraparið sá líka um Áramótaskaupið í fyrra en með því í handritaskrifum í ár er fjölbreyttur hópur höfunda sem Allan segir frábært að vinna með. Þar á meðal eru leikarinn Mikael Kaaber, leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir og grínistarnir Snjólaug Lúðvíksdóttir, Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi, og Ólafur Ásgeirsson.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗