Airwaves kveður Hafnarhúsið
Mikil stemning var oft á tónleikum á Airwaves í Hafnarhúsinu en röðin fyrir utan gat líka verið löng. Ísleifur B. Þórhallsson segir að kostnaður við tónleika þar hafi verið orðinn of hár. Samsett mynd/Eggert/Árni Sæberg
Áberandi breytingar verða gerðar á Iceland Airwaves-hátíðinni sem haldin verður í miðborg Reykjavíkur í næstu viku. Engir tónleikar verða að þessu sinni á Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, sem hefur verið stærsti tónleikastaðurinn í um aldarfjórðung. Í staðinn verða í fyrsta sinn tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þetta kemur fram í viðtali við Ísleif B. Þórhallsson, framkvæmdastjóra Senu Live, sem sér um framkvæmd hátíðarinnar, í Morgunblaðinu í dag.
Ísleifur segir að kostnaður hafi aukist síðustu ár og það skýri þessar breytingar. „Við vorum búin að sjá þetta koma í einhvern tíma. Það var orðið erfitt að réttlæta þetta vegna alls kostnaðarins; leigu, græja, gæslu og fleira. Til þess að halda þúsund manna stað fullum alla hátíðina þarf að borga yfirverð til að fá réttu listamennina og þetta stóð bara ekki undir sér lengur.“
Í ár verða í fyrsta skipti haldnir tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur á Airwaves. Salurinn þar tekur 600 gesti rétt eins og Kolaportið en þetta verða tveir stærstu tónleikastaðirnir í ár.
„Við erum mjög ánægð með að fá Ráðhúsið. Salurinn á jarðhæðinni er rosalega flottur og við erum þakklát fólkinu hjá Reykjavíkurborg fyrir að taka okkur vel og greiða götu okkar. Það er mikil hjálp og stuðningur í því að fá að nýta þennan sal,“ segir Ísleifur.
Ítarlegt viðtal við Ísleif er að finna á blaðsíðu 20 í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗