„Frábær eiginmaður“ en átti erfitt með einkvæni
Eiginkona breska grínistans og leikarans Russells Brands bar vitni í dag í réttarhöldunum yfir honum vegna ákæra um nauðganir og önnur kynferðisbrot. Sagði hún hann hafa átt „erfitt“ með að vera einkvænis en síðar orðið „frábær“ eiginmaður.
Réttarhöldin í Lundúnum eru nú á lokastigi. Brand er ákærður í sjö liðum fyrir nauðganir, önnur kynferðisbrot og tilraun til kynferðisbrots. Búist er við að kviðdómurinn dragi sig í hlé á þriðjudag til að komast að niðurstöðu í málinu.
Sex konur hafa lýst meintum brotum fyrir dómi, þar á meðal nauðgunum í endaþarm, leggöng og munn. Brotin eiga að hafa verið framin á árunum 1999 til 2009, þegar Brand varð þekktur sem uppistandari og sjónvarpsmaður.
Verði Brand, sem er 51 árs, fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi. Hann hefur neitað sök í öllum ákæruliðum og segir að þótt hann hafi áður verið lauslátur hafi hann ávallt stundað kynlíf með samþykki beggja aðila.
„Frábær og umhyggjusamur eiginmaður“
Laura Gallacher, eiginkona Brands, hefur verið viðstödd flest þinghöldin. Hún bar vitni um skapgerð hans og mannkosti og var örugg og róleg í máli þegar verjandi Brands og ákæruvaldið spurðu hana út í þau efni.
„Russell, maðurinn minn, er umhyggjusamur og góðhjartaður. Hann er yndislegur faðir barna okkar. Hann er frábær og umhyggjusamur eiginmaður,“ sagði Gallacher, sem er 39 ára. Brand fylgdist með henni úr sæti ákærða.
Þau gengu í hjónaband árið 2017 og eiga þrjú börn. Gallacher kemur oft fram á YouTube-rás Brands, sem er með yfir sex milljónir áskrifenda.
Hún sagði fyrir dómi að þau hefðu byrjað saman árið 2006, þegar hún var 19 ára. Í kynlífi hefði Brand sýnt henni „mikla umhyggju“ og farið alfarið á hennar hraða.
Hún sagðist hins vegar hafa áttað sig á því að hann væri „í samskiptum við aðrar konur“. Þau hefðu slitið sambandinu þar sem hún hefði ekki viljað vera í sambandi við hann ef hann svæfi hjá öðrum.
„Það var ljóst að hann átti erfitt með að vera einkvænis,“ sagði hún.
Kvaðst hafa verið heltekinn af kynlífi
Þegar Brand bar vitni í gær viðurkenndi hann að hafa verið „heltekinn“ af kynlífi og nýtt sér frægð sína til að auðvelda sér að finna rekkjunauta.
Gallacher sagðist hafa gert sér „fulla grein“ fyrir lauslæti Brands enda hefði reglulega mátt lesa um það í blöðunum.
Brand var um skamma hríð kvæntur bandarísku poppstjörnunni Katy Perry, frá 2010 til 2011.
Gallacher sagði þau Brand hafa haldið sambandi sem vinir en að þau hefðu „líklega ekki hist“ á árunum 2011 til 2014.
Fjórir ákæruliðanna varða meint brot frá því áður en Brand kynntist Gallacher. Dómarinn heimilaði ekki spurningar um afstöðu hennar til ásakananna.
Yfirlýsingar tveggja fyrrverandi kærastna Brands voru einnig lesnar upp fyrir dómi.
Önnur þeirra, Elia Alvarez Diaz, sagði þau hafa kynnst í leiklistarskóla á tíunda áratug síðustu aldar. Á meðan þau voru saman hefði hann verið „lauslátur og ótrúr“.
„Við rifumst oft,“ sagði í yfirlýsingu hennar.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗