Rúrik: „Ég á eftir að sakna þess mjög mikið“

Rúrik Gíslason vildi í fyrstu alls ekki taka þátt í IceGuys en segist nú þakklátur fyrir að hafa slegið til. Eftir þrjár sjónvarpsþáttaraðir, kvikmynd og fjölda tónleika nálgast kveðjustund hjá sveitinni og Rúrik viðurkennir að það verði erfitt að láta staðar numið.

„Þetta er sorglegt að mörgu leyti og ég á eftir að sakna þess mjög mikið að vera í IceGuys,“ segir hann í samtali við Smartland.

Kvikmyndin IceGuys the Movie verður forsýnd í Háskólabíói í kvöld og tekin til almennra sýninga á morgun, föstudaginn 30. október. Ævintýrinu lýkur síðan með kveðjutónleikum í Laugardalshöll 12. desember.

Rúrik ítrekar að ákvörðunin um að hætta sé engin auglýsingabrella.

„Við erum ekki að auglýsa eitthvað og komum svo aftur á næsta ári.“

Hann segir enga sérstaka ástæðu liggja að baki ákvörðuninni og vel fari á með félögunum.

„Við erum eins og lítil fjölskylda og elskum hver annan en ætlum að kalla þetta gott.“

Þakklátur fyrir að hafa slegið til

Hugmyndina að IceGuys átti Jón Jónsson árið 2023 og fékk hann bróður sinn, Friðrik Dór, Aron Can, Herra Hnetusmjör og Rúrik til liðs við sig.

Rúrik hafði þá lagt knattspyrnuskóna á hilluna og tekið að sér ýmis verkefni í skemmtanabransanum. Hann var þó efins um hugmynd Jóns, ekki síst vegna starfa sinna í Þýskalandi þar sem hann var stundum ráðinn í verkefni á alvarlegri nótum. Tilhugsunin um að gera grín að sjálfum sér vakti því nokkurn ugg.

„En guð minn góður, hvað ég er þakklátur fyrir að hafa sagt já við þessu.“

Það sem byrjaði sem brandari varð fljótt að miklu stærra verkefni. Fyrsta lag sveitarinnar, Rúlletta, kom út í júní sama ár og um haustið hófu gamanþættirnir IceGuys göngu sína í Sjónvarpi Símans.

Í desember 2023 héldu félagarnir þrenna uppselda tónleika í Kaplakrika. Ári síðar fylltu þeir Laugardalshöllina fimm sinnum og alls seldust um 24 þúsund miðar. Þangað sneru þeir aftur í desember 2025 og héldu ferna tónleika.

Rúrik á erfitt með að velja hvað standi upp úr. Hann hafi lært mikið um tónlist og fengið að starfa með fjórum bestu tónlistarmönnum Íslands að hans mati. Hann vonar einnig að gleðin sem hafi einkennt samstarfið hafi skilað sér til áhorfenda og hlustenda.

IceGuys fylltu Laugardalshöllina fimm sinnum árið 2024.

IceGuys fylltu Laugardalshöllina fimm sinnum árið 2024. mbl.is/Karítas

„Þetta er búið að vera eintóm gleði“

Rúrik segir félaga sína í IceGuys vera meðal sinna bestu vina. Þeir séu hæfileikaríkir, kurteisir og komi vel fram við aðra, enda sé auðvelt að vinna með þeim.

Hann kannast ekki við að samstarfið hafi einkennst af þeim hæðum og lægðum sem gjarnan fylgja nánu samstarfi.

„Ég vildi að ég gæti gefið þér eitthvað skúbb með það en þetta er bara búið að vera eintóm gleði.“

Rúrik segist hafa átt erfitt með svefn. Hugurinn hafi leitað til allra stundanna með strákunum og gleðinnar sem verkefnið hafi fært honum. Jafnframt hafi tilhugsunin um forsýninguna haldið fyrir honum vöku.

„Þótt þetta sé grín þá ertu líka að berskjalda þig,“ segir hann. „Ég bara vona að fólk muni taka þessari mynd vel.“

Vonar að myndin sameini fjölskyldur

Rúrik lýsir IceGuys the Movie sem grínmynd fyrir alla aldurshópa og vonar að fjölskyldur njóti hennar saman. Hann nefnir þætti Hemma Gunn sem dæmi um sjónvarpsefni sem hafi sameinað fólk á sínum tíma.

Í dag sé úr meiru að velja og fjölskyldumeðlimir gjarnan hver í sínu horni. Hann vonar að myndin verði tilefni til að fara saman í bíó, hlæja saman og mögulega gráta saman.

Eftir bíóævintýrið tekur við undirbúningur fyrir kveðjutónleikana. Rúrik segir að ákveðið hafi verið að hafa sæti fyrir alla á fjölskyldutónleikunum til að koma til móts við gesti. Um kvöldið verði svo partítónleikar eins og undanfarin ár.

Þar lýkur samstarfi sem hófst sem grín en varð að tæplega fjögurra ára ævintýri.

IceGuys á sviði árið 2025.

IceGuys á sviði árið 2025. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅