Segir vináttu þeirra hafa farið fyrir brjóstið á fólki

Cynthia Erivo og Ariana Grande á Golden Globe-verðlaunahátíðinni 2025. Erivo segir vináttu þeirra hafa sætt óvæginni gagnrýni. AFP/Etienne Laurent

Leikkonan Cynthia Erivo segir vináttu hennar og Ariönu Grande hafa vakið furðu sterk viðbrögð þegar þær kynntu Wicked-kvikmyndirnar tvær.

Fólk hafi dregið einlægni þeirra í efa og gagnrýnt þær fyrir að sýna tilfinningar í viðtölum.

„Það var áhugavert hvað margir voru orðnir sálfræðingar heima í sófanum,“ segir Erivo í viðtali við The Guardian.

„Það var einhvers konar undarleg gremja yfir því að tvær konur gætu í raun verið vinkonur.“

Erivo og Grande fóru með hlutverk Elphöbu og Glindu í myndunum, sem komu út árin 2024 og 2025. Vinátta þeirra utan hvíta tjaldsins vakti mikla athygli, ekki síst þegar þær klökknuðu saman í viðtölum.

Erivo segir þær þó vart hafa getað gert öllum til hæfis.

„Ef við hefðum verið með tóman augnsvip og ekki sýnt neinar tilfinningar hefði fólk fundið eitthvað annað að því,“ segir hún.

Ariana Grande og Cynthia Erivo sem Glinda og Elphaba.

Ariana Grande og Cynthia Erivo sem Glinda og Elphaba. Skjásakot/YouTube

Brást við til að vernda vinkonu sína

Erivo rifjar einnig upp atvik í Singapúr í nóvember í fyrra, þegar maður hljóp að Grande á rauða dreglinum og lagði handlegginn utan um hana. Erivo greip inn í og reyndi að koma honum frá vinkonu sinni.

Hún lýsir atvikinu sem skelfilegu.

„Enginn annar hreyfði sig. Við vorum á rauða dreglinum og berskjaldaðar. Mín fyrstu viðbrögð voru: Komið þessum manni frá okkur strax.“

Erivo tók illa í að vera í kjölfarið kölluð lífvörður Grande. Hún hafi einfaldlega brugðist við eins og hún hefði gert fyrir hvaða vin sem er.

„Þetta voru mannleg viðbrögð. Ég hefði gert þetta fyrir hvaða vin sem er og vona að vinur hefði gert það sama fyrir mig.“

People

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅