Federline í fjárhagsvanda eftir að meðlagsgreiðslum lauk
Meðlagsgreiðslum Britney Spears til Kevins Federlines lauk árið 2024. Hann segir féð hafa farið nánast jafnóðum og það barst en stendur nú frammi fyrir milljónakröfu frá banka. AFP/Skjáskot/Youtube
Kevin Federline, fyrrverandi eiginmanni söngkonunnar Britney Spears, hefur verið stefnt vegna meintra skulda við City National Bank. Bankinn krefur hann um rúmlega 117 þúsund bandaríkjadali, jafnvirði um 14,3 milljóna króna, auk vaxta.
Samkvæmt dómsgögnum sem Page Six hefur undir höndum er um að ræða ógreidda kreditkortaskuld, lán og yfirdrátt. Lögmaður Federlines hafði ekki svarað fyrirspurn miðilsins þegar fréttin birtist.
Federline, sem er 48 ára, gerði samning við bankann í nóvember 2024, um það leyti sem meðlagsgreiðslum frá Spears lauk. Þau eiga saman synina Sean Preston og Jayden James.
Segir meðlagið hafa farið fljótt
Federline fékk áður 40 þúsund dali á mánuði í meðlag, jafnvirði um 4,9 milljóna króna. Greiðslurnar lækkuðu um helming þegar eldri sonurinn varð átján ára og héldu áfram þar til sá yngri lauk framhaldsskólanámi.
Í endurminningabók sinni, You Thought You Knew, segir Federline féð meðal annars hafa farið í öryggisgæslu og að tryggja sonunum sambærileg lífskjör og þeir nutu hjá móður sinni. Sá kostnaður hafi hæglega farið yfir mánaðarlegar meðlagsgreiðslur.
„Peningarnir voru nánast farnir um leið og þeir komu inn,“ skrifar hann.
Federline og Spears gengu í hjónaband árið 2004 en skilnaður þeirra gekk í gegn árið 2007.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
