Fann innblástur þegar börnin fluttu að heiman

Jennifer Lopez á viðburði í Los Angeles í júní.

Jennifer Lopez á viðburði í Los Angeles í júní. AFP/Monica Schipper

Söngkonan Jennifer Lopez segir nýjan kafla hafa hafist í tónlist sinni þegar tvíburarnir hennar, Emme og Max, fóru í háskóla og fluttu að heiman. Þótt breytingunum hafi fylgt sorg og söknuður hafi hún fundið innblástur og samið nokkur af sínum bestu lögum.

Þetta kemur fram í viðtali við Variety. Tvíburarnir eru átján ára og Lopez á þá með fyrrverandi eiginmanni sínum, söngvaranum Marc Anthony.

„Börnin eiga hug manns svo lengi. Þegar þau fara, sem er átakanlegt, sorglegt og ógnvekjandi, stendur maður frammi fyrir gjörbreyttu lífi og hugsar: Hvað á ég að gera við allt þetta svigrúm og þennan tíma?“ segir Lopez.

„Ég hef samið nokkur af bestu lögum sem ég hef nokkru sinni samið og er mjög spennt.“

Þrátt fyrir söknuðinn segir hún gleði einkenna væntanlega plötu. Lögin séu falleg og gleðirík, þótt örli á trega.

Jennifer Lopez og tvíburarnir hennar, Max og Emme, á góðri stundu. Skjáskot/Instagram

Gefur gömlum draumum rými

Lopez hefur áður rætt tilfinningarnar sem fylgja því að börnin flytji að heiman eins og mbl.is hefur áður greint frá.

Daglegar venjur, á borð við líkamsrækt og húðumhirðu, hjálpi henni að takast á við breytingarnar. Hún hvatti jafnframt foreldra í sömu sporum til að nýta tímann til að sinna sjálfum sér og rifja upp drauma sem hefðu lengi setið á hakanum.

„Maður er svo spenntur fyrir þeirra hönd að þau séu að hefja nýjan kafla í lífinu. En við verðum líka að muna að þetta er nýr kafli í okkar lífi.“

People

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅