Rifjar upp síðustu orð föður síns

Kim Kardashian rifjar upp síðustu samtölin við föður sinn í nýrri ævisögu. Hér er hún á hátíðarkvöldverði í október. AFP/Lisa O’Connor

Kim Kardashian rifjar upp síðustu samtöl sín við föður sinn, lögmanninn Robert Kardashian, í nýrri ævisögu.

Hann lést árið 2003, aðeins átta vikum eftir að hann greindist með krabbamein í vélinda. Hann var 59 ára en Kim var þá 22 ára.

Í bókinni Citizen Kim: The Woman Who Created the Future, eftir Jonathan Van Meter, segir Kim að faðir hennar hafi fullvissað hana um að henni myndi farnast vel í lífinu. Jafnframt hafi hann beðið hana að gæta systkina sinna.

„Hann lagði höndina á fótlegginn á mér. Ég gleymi því aldrei,“ segir Kim og rifjar upp að þau hafi legið þétt saman í sófa og horft á kvikmynd.

„Þér mun farnast vel. En hugsaðu um hin. Og vertu viss um að bróðir þinn hafi það gott,“ hafi hann sagt.

Kim Kardashian ásamt föður sínum Robert Kardashian.

Kim Kardashian ásamt föður sínum Robert Kardashian. skjáskot/Instagram

Þakkaði honum fyrir allt

Kim greinir einnig frá síðustu orðunum sem hún sagði við föður sinn. Þá hafi hann ekki lengur getað tjáð sig og hún vitað að dauðinn væri á næsta leiti.

„Pabbi, takk kærlega fyrir allt sem þú hefur kennt mér, allt frá því hvernig ég á að vera góð manneskja til þess hvernig þú hjálpaðir mér með heimanámið,“ sagði hún við hann.

Hún hafi jafnframt lofað að miðla því sem hann kenndi henni til eigin barna þegar þar að kæmi.

Robert og Kris Jenner voru gift frá 1978 til 1991 og eignuðust fjögur börn, Kourtney, Kim, Khloé og Rob.

Kris Jenner og Robert Kardashian eignuðust fjögur börn.

Kris Jenner og Robert Kardashian eignuðust fjögur börn. Skjáskot/Instagram

People

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅