Nablinn hættur: Hvetur stráka til að vinna á leikskóla

Andri Már Eggertsson vendir kvæði sínu í kross.

Andri Már Eggertsson vendir kvæði sínu í kross. Ljósmynd/Facebook

Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, hefur sagt starfi sínu lausu á leikskólanum Baugi í Kópavogi eftir tæplega átta ára starf. Hann greinir frá þessu í færslu á Facebook.

Íþróttafréttamaðurinn og húmoristinn hefur verið í hálfu starfi á leikskólanum meðfram íþróttafréttaöflun í sjónvarpi, hlaðvarpsframkomum og veislustjórnun undanfarin ár. 

Andri þakkar Baugi fyrir samstarfið og hvetur stráka til að vinna á leikskólum. Hann segist aðeins hafa ælt tvisvar yfir kúkableyju á átta ára ferli.

Nablinn hleypir nú heimdraganum og hefur sagt starfi sínu lausu á leikskólanum í efri byggðum Kópavogs hvar hann ól manninn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Leggur bleyjuna á hilluna

„Eftir tæplega átta ár sem starfsmaður á leikskólanum Baugi er kominn tími á að leggja bleyjuna á hilluna.“

Andri segir að eftir svona mörg ár á frábærum vinnustað sé erfitt að sleppa takinu og kveðja. Hann sé endalaust þakklátur því frábæra fólki sem hann hafi kynnst í gegnum árin, bæði samstarfsfólki en líka foreldrum og krökkum.

„Mér finnst eins og það hafi gerst í gær þegar ég mætti á fyrsta vinnudaginn.

Ég klifraði yfir grindverkið því ég kunni ekki að opna hliðið, setti barn út í krumma og sá fyrir mér að þrauka fram að sumri og snúa mér svo að einhverju öðru.“

Börnin á Baugi klæddust bláu á alþjóðlegum degi einhverfunnar fyrir nokkrum árum. Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gefandi að vinna á leikskóla

„Það tók þó ekki langan tíma að fatta hversu gefandi og æðislegt það væri að vinna á leikskóla og starf sem átti að vera tímabundið í nokkra mánuði eftir útskrift úr fjölbraut endaði í átta árum.

Ég get ekki mælt nógu mikið með því fyrir stráka að fara og vinna á leikskóla eða allavega á Baugi, þar er frábært að vera,“ segir Andri Már. 

Hann segir fólkið sem hann hafi kynnst í starfi vera það sem sitji eftir við lok starfsins. Þar á meðal sé leikskólastjórinn Maggý, hún sé frábær í sínu starfi og hafi reynst Nablanum ótrúlega vel.

Ældi aðeins tvisvar yfir kúkableyjum 

„Þá sérstaklega þegar hún trúði því í atvinnuviðtali að ég væri með það á hreinu hvernig ætti að skipta á kúkableyjum en ég lærði það og ældi bara tvisvar af þeim fjölmörgu bleyjum sem ég skipti á.“

Andri segist geta haldið lengi áfram að telja upp gott fólk sem hafi starfað með honum hjá Kópavogsbæ.

„Að ógleymdum litlu skjólstæðingunum mínum sem gefa engan afslátt og hika ekki við að minna mig á að ég sé að missa hárið og bíða eftir að verða stærri en ég.

Að lokum óska ég eftir því að ef einhver vina minna fær njálg eða lús þá má senda mér tölvupóst. Ég á eftir að sakna þess að fara klæja um leið og einhver nefnir að slíkt sé að ganga.“

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅