Segir „hræðilega menn“ hafa sótt Playboy-setrið

Crystal Hefner ásamt eiginmanni sínum heitnum, Hugh Hefner. Hún segir hann hafa safnað í kringum sig körlum sem sýndu konum fyrirlitningu. AFP/Gabriel Bouys

Crystal Hefner, ekkja Hughs Hefners, segir kvenfyrirlitningu hafa verið áberandi meðal þekktra karla sem voru tíðir gestir á Playboy-setrinu.

Í viðtali við fjölmiðla vestanhafs lýsir hún kynnum sínum af þekktum gestum setursins og gagnrýnir leikarann Jon Lovitz fyrir að gera lítið úr frásögn hennar.

„Þarna komu virkilega hræðilegir menn,“ segir Crystal. Hún segir eiginmann sinn hafa safnað í kringum sig körlum með svipuð viðhorf og nefnir í því samhengi Bill Cosby og Donald Trump.

Cosby hafi verið tíður gestur og hún minnist þess að hafa liðið óþægilega þegar hún þurfti að sitja fyrir á myndum með honum á árlegri djasshátíð Playboy, þar sem hann var lengi kynnir.

Þá segir hún leikarann Jack Nicholson hafa verið svo tíðan gest að setrið hafi verið kallað „bílalúga Jacks Nicholsons“.

„Hann gat ekið að, þar voru konur og matur og hann tók bara það sem hann vantaði og fór,“ segir hún.

Hugh Hefner og Crystal Hefner á Playboy-setrinu árið 2014.

Hugh Hefner og Crystal Hefner á Playboy-setrinu árið 2014. AFP/Charley Gallay

Lovitz vísar gagnrýni á bug

Crystal ræddi einnig um gesti setursins í hlaðvarpinu Lisa Guerrero Unleashed. Þar kallaði hún Lovitz „viðskiptavin númer eitt“ og sagði hann hafa verið meðal mestu perversanna í Hollywood. Hann hefði verið sífellt á staðnum og virt konurnar fyrir sér þegar þær gengu inn.

Lovitz svaraði ummælunum í myndskeiði sem Page Six hefur undir höndum.

„Í hvert sinn sem einhver segir að ég sé númer eitt er það hrós,“ sagði hann. Hefner hefði verið einn sá almennilegasti og örlátasti sem hann hefði kynnst.

Crystal gefur lítið fyrir þau viðbrögð.

„Ég tel Jon Lovitz vera hluta af vandanum. Ég tel marga þeirra karla sem komu í setrið og sýndu mikla kynjamismunun og kvenfyrirlitningu vera hluta af því vandamáli,“ segir hún.

Átti líka góðar minningar af gestum

Crystal tekur þó fram að hún hafi einnig kynnst góðu fólki í setrinu. Hún nefnir leikkonuna Julie Newmar sérstaklega og segir leikarann Mark Hamill og eiginkonu hans, Marilou York, hafa verið yndisleg.

Í fyrrnefndum hlaðvarpsþætti sakaði hún Hefner jafnframt um kynferðisofbeldi og lýsti því hvernig hann hefði þvingað hana og aðrar konur til kynferðislegra athafna.

„Ég er ekki hrædd lengur,“ segir hún. „Það var fólk sem bjó með mér sem varð fyrir skaða og mér finnst það einfaldlega ekki í lagi.“

Fulltrúi dánarbús Hefners svaraði ekki beiðni Page Six um viðbrögð.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅