„Thumbs up“ fyrir orkumálaráðherra

Samfélagsmiðlar íslensks stjórnmálafólks eru alltaf undir smásjá og því sem þar fer fram gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina má í heild sinni sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir Ísland engan leikvöll fyrir torfærutrukka og við bara gætum ekki verið meira sammála. Samsett mynd/Skjáskot/Instagram

Dómsmálaráðherra í Svíþjóð

Halló heimur, þá er október að renna sitt skeið og það þýðir bara eitt: neysluhyggju nóvember gengur í garð í allri sinni dýrð. Vúhhh! Allir alveg nötrandi úr spennu yfir singles day og svörtum fössara og allri gerviþörfinni fyrir góssi á skíð og ingentíng eða þannig. En jæja, best að hætta þessu babbli og bara áfram smjörið!

Obbfríður dómsmáladrolla skellti sér til Svíþjóðar á dögunum. Sína gömlu heimahaga, enda eru náttúrulega bara eintómir útlendingar sem búa í Svíden. En þar fékk hún mega flashback og minntist þess þegar hún var ung og villt og frjáls, í tréklossum með sítt að aftan. Æ, sætt.

Baneitraðir!

Hey vó! Sjá þessa baneitruðu stælgæja sem voru saman komnir á dögunum, Logi Einars og Lars Lökke, undir fögrum tónum Kim Larsen. Allt eins og það á að vera. Rándýrt alveg.

Öryggisráðstafanir í skólum

Snúlli Másson staldraði aðeins við í vikunni og velti því fyrir sér hvað í ósköpunum hefur eiginlega gerst hérna. Nú eru allir og ömmur þeirra að biðja um auknar öryggisráðstafanir í skólum landsins. Já, það er sko af sem áður var. Hvernig væri bara að byrja í Leifsstöð? Svona áður en allir villingarnir frá útlöndum komast með flugrútunni niður í Mjódd.

Makeover á Mjóddinni 

Simmi Dabbi hefur alla vega litla trú á makeover áformum í Mjóddinni til að draga úr ofbeldi og öðrum eins óskunda sem stundaður er þar. Ja, ég meina. Er ekki bara best að svara ofbeldi með ofbeldi og hýða þetta lið á bert rassgatið með hönnunarvörum úr Epal.

Fishy, fishy, fishy

Maður verður bara eitthvað svo aðeins Íslenskari á því að fylgjast með Íslenskasta Íslendingnum, Höllu Hrund, á samfélagsmiðlum en í vikunni kynnti sagði hún okkur sögu ísaldarurriðans sem býr í Þingvallavatni. Ég er vitrari í dag en í gær. Takk Halla Hrund.

Rýnt í kommentakerfið

Togga Gunn tók upp á því að svara spurningum virkra í athugasemdum á ferðalagi sínu frá Víetnam til Kína. Já já já, bara múltítask og gagnsæi hjá okkar konu.

Jenni kennir á brennsann

Jenni kennir er á blússandi siglingu þessa dagana og nú fer hann yfir verðlag á brennivíni með okkur og hvað helvítis partípúperarnir hjá ríkinu hirða mikið í sinn hlut. Það liggur bara beinast við að taka Boga og Örvar á þetta: Við erum í slæmum málum tralalalaaalaa.

Dagur í lífi sjalla

Annars hefur ýmislegt drifið á daga þingmanna Sjálfstæðisflokksins eins og gert var skil á samfélagsmiðlum í vikunni. Vakna 10, fresh, fresh, fæ mér kjötbollu og Collab, fer svo upp í pontu til að vera með smá kvabb… Ó hve ljúft það er á Alþingi.

Sjálfa á Sjóminjasafninu 

Sjálfukóngurinn skellti sér á Sjóminjasafnið og myndaði sjálfan sig í bak og fyrir. Enda ekkert eðlilega kjörþokkafullur eins og vinir mínir á Viðskiptablaðinu myndu segja.

Jóhann Páll hefur talað

JP-orkumáladúddi er ekki hrifinn af því að Ísland sé álitið einhver leikvöllur fyrir fullvaxna útlenska torfærutrukka. Nej det går ikke. Ég gæti ekki verið meira sammála honum og Dagga Konna ekki heldur. Hún bara alveg: „ok thumbs up“ með báðum þumlum. Það er stórt sko!

Frá Víetnam á Vestfirði

Víetnamfarinn María Rut gerði sér lítið fyrir og var mætt beint vestur á land nánast um leið og hún lenti frá Asíu, bara mættust á fjórðungsþing Vestfjarða eins og hendi væri veifað. Geri aðrir betur. Allt fyrir klúbbinn!

Eyjólfur, lofbrúin og landsbyggðin

Eyjó peyjó deildi gamalli minningu á Facebok í vikunni en hann hefur verið allra óvinsælasti gæinn á ballinu undanfarna daga - greyið maðurinn. En það er ekki af ástæðulausu sko, næst á dagskrá hjá honum er nefnilega bara að fokka upp landsbyggðinni endanlega með þessari breytingu á loftbrúnni. Sveiattan.

Framsóknarflokkurinn henti í keppni

Frammörunum er ekki skemmt yfir þessu loftbrúarrugli í Eyjólfi og ákváðu að efna til keppni sem sneri að því hvaða frammari gæti nefnt flest landsbyggðardauðamál í boði ríkisstjórnarinnar á 30 sekúndum. Og hver haldið þið að hafi borið sigur úr býtum, alla vega ekki Tóti, hann skíttapaði. Enda ekki hægt að vera formaður sjarmatröllafélagsins og gáfumannaklúbbsins. Heldur var það kvín Ingibjörg Isaksen sem vann, enn ekki hvað! Öflug er hún stelpan.

Smelltu á spilarann hér að neðan til að nálgast nýjasta þátt Spursmála í heild sinni:

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅