Heidi Klum óþekkjanleg í hrekkjavökubúning

Hin 53 ára Klum var gjörsamlega óþekkjanleg þegar hún mætti í samkvæmið. Samsett mynd/AFP/Noam Galai/Kenzo Tribouillard

Ofurfyrirsætan og sjónvarpsþáttastjórnandinn, Heidi Klum, sannaði stöðu sína sem drottning hrekkjavökunnar enn og aftur í gærkvöldi þegar hún mætti í sérstökum búningi í búningapartý sitt í New York-borg.

Hin 53 ára Klum var gjörsamlega óþekkjanleg þegar hún mætti í samkvæmið í sérstöku gervi. Hún var risastór afhöggvin hönd. 

Heidi Klum var í sérstökum búningi á hrekkjavökunni.

Heidi Klum var í sérstökum búningi á hrekkjavökunni. AFP/Noam Galai

Í ár eru 25 ár liðin frá fyrsta partíi Klum, sem sameinar stjörnur hvaðanæva úr heiminum í villtum, furðulegum og stórkostlegum búningum.

Klum deildi myndum af búningnum þar sem hún sagði fylgjendum sínum einfaldlega að „tala við höndina,“ en samtali við fréttamenn á rauða dreglinum sagði Klum að mikið basl hafi verið að setja búninginn saman.

„Það þurfti margar hendur til að setja þessa hönd saman,“ sagði Klum við fréttamenn þegar hún stillti sér upp fyrir myndatöku á rauða dreglinum. „Ég held að það hafi þurft í kringum 10 til 20 hendur.“

Síðar um kvöldið frelsaði Heidi sig úr greipum handarinnar og skemmti sér með gestum sínum. AFP/Noam Galai

„Ég held að ég geti einhvern veginn komið líkamanum fyrir inni í þessu“

Þegar hún útskýrði hvaðan hugmyndin kom sagði hún: „Ég horfði á höndina á mér og hugsaði: „Heyrðu, ég held að ég geti einhvern veginn komið líkamanum fyrir inni í þessu.“

„Ég reyni alltaf að finna upp á einhverju óvenjulegu og ég held að ég hafi aldrei séð alvöru manneskju ganga um eins og hönd. Mér fannst það vera eitthvað nýtt og öðruvísi.“

Klum hikar aldrei við að klæða sig upp á þessum skelfilegasta degi ársins, en meðal fyrri gerva hennar eru ormur, Medúsa og trölla-prinsessan Fíóna úr Shrek-myndunum.

Meðal annarra gesta í partíi Klum í ár voru leikararnir Neil Patrick Harris og David Burtka, sem komu gestum á óvart með því að klæða sig sem tvíburarnir úr hryllingsmyndinni The Shining.

Poppstjarnan Jade Thirlwall mætti einnig í partíið í New York, klædd sem steinstytta af engli, og Taylor Momsen brá sér í gervi Alvins íkorna úr samnefndum kvikmyndum.

Þýska fyrirsætan Laura Abla brá sér í gervi einnar af þekktari uppákomum dægurmenningar síðari ára, þegar Britney Spears og Christina Aguilera kysstu Madonnu á kinn á afhendingu VMA-verðlaunanna árið 2003. AFP/Noam Galai

Poppstjarnan JADE mætti í teiti Heidi klædd sem steinstytta af engli. AFP/Noam Galai

Harris og eiginmaður hans, Burtka, voru óhugnanlegir í samstæðum búningum sínum. AFP/Noam Galai

Heidi Klum og Taylor Momsen.

Heidi Klum og Taylor Momsen. AFP/Noam Galai

Veitingarnar, fastar sem fljótandi, voru í anda hrekkjavökunnar.

Veitingarnar, fastar sem fljótandi, voru í anda hrekkjavökunnar. AFP/Noam Galai

Fjölbreyttir búningar á bláa dreglinum hennar Heidi.

Fjölbreyttir búningar á bláa dreglinum hennar Heidi. AFP/Noam Galai

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅