Michael Mann skaut sig í fótinn fyrir slysni

Michael Mann ásamt eiginkonu sinni á forsýningu nýrrar kvikmyndar í haust. AFP/Amy Sussman

Michael Mann, þungavigtarmaður í Hollywood, skaut sjálfan sig í fótinn fyrir slysni.

Leikstjórinn slapp vel frá atvikinu en var lagður á spítala með minniháttar áverka.

Byssan hleypti af þrátt fyrir að vera í slíðri Manns.

Atvikið átti sér stað á skotsvæði í Los Angeles að sögn lögreglu í borginni.

Mann, sem er þekktur fyrir kvikmyndir eins og Heat, Thief og Public Enemies. Sú fyrstnefnda, Heat, er sennilega hans þekktasta mynd og skartar stórstjörnunum Al Pacino og Robert de Niro.

Leikstjórinn, sem er 81 árs, vinnur nú að framhaldsmynd, Heat 2. Samnefnd bók kom út fyrir fáeinum árum. Hann gaf út myndina Ferrari árið 2023.

Variety

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅