Verðið fylgir ekki heimsmarkaðslækkun
ASÍ segir innlent bensínverð fljótt að taka kipp upp á við þegar hækkar á heimsmarkaði á meðan lækkanir ytra skili sér seint og illa hingað. mbl.is/Golli
Heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað frá því um miðjan september, en innlent bensínverð án opinberra gjalda hefur enn ekki fylgt þeirri lækkun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ sem gagnrýnir að innlent eldsneytisverð án opinberra gjalda bregðist hratt við hækkunum á heimsmarkaðsverði, en öllu hægar við lækkunum á því.
Tiltekur ASÍ í tilkynningu sinni að heimsmarkaðsverð bensíns hafi lækkað frá því um miðjan september án þess að innlent verð án opinberra gjalda hafi fylgt lækkuninni. „Frá ársbyrjun hefur meðaltal lægsta bensínverðs hjá íslenskum smásölum hækkað um tæp 35%. Bensínverð án opinberra gjalda hefur á sama tíma hækkað um 40%,“ segir þar og til samanburðar að svokallað staðverð í New York-höfn, mælikvarði á heimsmarkaðsverð, hafi samtímis hækkað um 20 prósent í íslenskum krónum.
Ör hækkun fram á vor
Verð hafi hækkað ört fram á vor og nær tvöfaldast frá áramótum og þar til hámarkinu var náð í maí. Þá segir í tilkynningu ASÍ:
Það lækkaði síðan fram á sumar, en hækkaði á ný fram um miðjan september. Innlent bensínverð án opinberra gjalda sveiflaðist mun minna á þeim tíma, eins og myndin ber með sér. Að undanförnu hefur þróunin hins vegar snúist við: heimsmarkaðsverð hefur lækkað verulega frá september, en innlent verð án opinberra gjalda hélt áfram að hækka fram í byrjun nóvember og hefur aðeins lækkað lítillega síðan.
Samanburður við önnur Evrópuríki hafi sýnt að bensínverð án opinberra gjalda hafi lengst af hækkað minna á Íslandi í evrum talið en víðast hvar. Þetta hafi svo breyst nú með haustinu, verðið hækkað hratt í september og hækkunin haldið áfram í október þegar lækkun hafi verið hafin í flestum samanburðarlandanna.
Þann 9. nóvember var bensínverð án opinberra gjalda á Íslandi tæpum 58% hærra í evrum talið en 5. janúar. Hækkunin nam tæpum 46% samkvæmt viðmiði fyrir Evrópusambandið. Meðal landanna á myndinni hafði verðið aðeins hækkað meira á Írlandi, eða um rúmlega 61%. Til samanburðar nam hækkunin um 23% í Hollandi og 35% í Finnlandi.
Gengisbreytingar hafi áhrif á niðurstöðu
Tekur ASÍ fram að við samanburðinn þurfi að hafa í huga að íslenski mælikvarðinn byggist á útreikningum ASÍ á meðaltali lægsta verðs hvers smásala, að frádregnum opinberum gjöldum og umreiknuðu í evrur.
Þar með sé ekki tryggt að úrtak og aðferð við meðaltalsútreikning séu að fullu sambærileg milli landa. Samanburðurinn sé jafnframt í evrum og gengisbreytingar hafi því áhrif á niðurstöðuna. Hækkunin um 58% á Íslandi sé þannig á öðrum gjaldmiðilsgrunni en 40% hækkunin í krónum sem nefnd er hér að ofan.
Telur ASÍ sýnt með yfirferð sinni að lækkun heimsmarkaðsverðs síðustu vikna hafi aðeins að litlu leyti komið fram í innlendu bensínverði. Á móti komi að innlent verð hækkaði hlutfallslega minna þegar heimsmarkaðsverð hækkaði ört í vor og fylgdi ekki hækkunum þess í sumar. Hluti hausthækkunarinnar hér á landi kunni því að endurspegla síðbúna aðlögun að erlendum aðstæðum.
„Samanburðurinn gefur tilefni til að fylgja fyrri greiningum eftir, en nægir ekki einn og sér til að meta hvort munur sé á hraða og umfangi aðlögunar að erlendri þróun,“ segir að lokum í tilkynningu ASÍ.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗