„Svo kemur svona lítil vömb upp úr mjaðmapilsinu“

Listrænn stjórnandi Chanel, Matthieu Blazy, var til umræðu í nýjum þætti Dagmála með Mörtu Maríu Winkel og Eddu Gunnlaugsdóttur. Blazy kynnti pils sem lágu lágt á mjöðmunum fyrir næsta sumar og Marta María telur líklegt að einhverjar muni sækja gamla góða bumbubanann við þessar fréttir. 

„Það er ekkert skrýtið að fólk sé svona tryllt yfir þessu. Hann er alveg búinn að ná mér og það er meiri gleði og fleiri litir,“ segir Edda um tískuhúsið Chanel eftir að Blazy tók við hönnunarstjórn. 

„Þetta er ekki bara einhver svartur Chanel-jakki, pils og fýlusvipur,“ tekur Marta María undir. 

„En það sem ég tók eftir er að mittislínan er að lækka rosalega á pilsunum þannig að pilsin hanga á mjöðmunum. Ég hugsaði með mér að ef það verður trend næsta sumars þá þurfa konur að fara að kaupa sér bumbubana og vera í honum bara. Af því þú getur ekki verið í svona pilsi og svo kemur svona lítil vömb upp úr mjaðmapilsinu.“

Horfðu á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan. 

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅