„Instagram verður aldrei það sama og raunveruleg tímaritsforsíða“
„Flestir í Búlgaríu þekkja börnin mín frá því þau voru lítil, enda hef ég verið mikið í fjölmiðlum þar í gegnum árin. Victoria var aðeins eins árs þegar við fluttum fyrst til Búlgaríu. Ég tók hana oft með mér á viðburði og á rauða dregilinn þegar hún var lítil. Búlgarar hafa því svolítið fengið að fylgjast með henni vaxa úr grasi,“ segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir í samtali við Smartland en hún og dóttir hennar, Victoria Gunnlaugsdóttir prýða forsíðu Glamour í Búlgaríu.
Ásdís Rán segir að Victoria dóttir hennar sé að feta í fótspor móður sinnar.
„Núna er hún orðin ung kona og farin að stíga sín fyrstu skref í fyrirsætubransanum.Glamour fannst því falleg hugmynd að setja okkur saman á forsíðuna, móður og dóttur sem eru mjög líkar, en staddar á ólíkum stað í lífinu. Þemað var svolítið „næsta kynslóð“. Ég færi mig aðeins til ogVictoria stígur fram. Þó ég sé nú ekki alveg sest í helgan stein ennþá,“ segir Ásdís Rán.
Þaut af stað!
Victoria þurfti ekki að hugsa sig um lengi þegar hugmyndin kviknaði.
„Victoria samþykkti þetta strax og flaug til Búlgaríu í myndatökuna aðeins fimm dögum síðar. Úr varð þessi fallegi myndaþáttur og forsíða sem við getum varðveitt fyrir komandi kynslóðir. Myndirnar fanga sambandið okkar eins og það er í dag og eiga vonandi eftir að segja sína eigin sögu langt inn í framtíðina,“ segir Ásdís Rán.
Ásdís Rán segir að það sé alger synd hvað glanstímaritum hafi fækkað mikið í heiminum síðustu ár.
„Það er því miður staðreynd að prentuðum tímaritum fer sífellt fækkandi og mörg þeirra eru alfarið að færast yfir í vefútgáfur. Mér finnst það mikil synd, því Instagram verður aldrei það sama og raunveruleg tímaritsforsíða sem hægt er að halda á og varðveita. Glamour er auðvitað eitt þekktasta tímarit í heiminum og ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri til að prýða forsíðuna með dóttur minni.“
Mæðgurnar vinna saman í fyrirtækinu Talent Book.online sem er nýr vettvangur fyrir hæfileikafólk eins og fyrirsætur og leikara.
„Verkefnið er nýlega opnað í Búlgaríu þar sem það hefur fengið ótrúlega góðar viðtökur ásamt því voru við official partners við Fashionweek en erum á sama tíma að taka fyrstu skrefin á Íslandi. Við erum því ekki lengur bara mæðgur og bestu vinkonur, heldur líka orðnar viðskiptafélagar.“
Um hvað snýst viðtalið við ykkur í Búlgarska Glamou?
„Viðtalið snýst aðallega um okkur, náið samband okkar og lífið á milli Íslands og Búlgaríu. Við tölum líka um hvernig það var fyrir Victoriu að alast upp með þekkta foreldra, framtíðardrauma hennar og hvað við höfum lært hvor af annarri,“ segir Ásdís Rán en faðir Victoriu er fótboltamaðurinn Garðar Gunnlaugsson sem var atvinnumaður í fótbolta í Búlgaríu um tíma. Ásdís Rán játar að þessi forsíða eigi stað í hjarta hennar.
„Ég hef sjálf prýtt ótal forsíður í gegnum árin, en að fá að gera þetta með dóttur minni, einmitt þegar hún er að hefja sitt eigið ferðalag, er allt önnur tilfinning. Þetta er upphafið að nýjum kafla hjá okkur báðum og kannski mín leið til að rétta henni kyndilinn og hvetja hana áfram í sínum eigin ævintýrum. Hún er ótrúlega klár, falleg og dugleg og ég efast ekki um að hún eigi eftir að ná langt í hverju sem hún ákveður að taka sér fyrir hendur,“ segir Ásdís Rán.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

