Klæddist sex milljarða króna brjóstahaldara

Kylie Jenner var aðalatriðið í Victoria's Secret tískusýningunni sem fór fram um helgina. Samsett mynd/Instagram

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner skartaði sex milljarða króna demantsbrjóstahaldara á tískusýningu undirfatamerkisins Victoria's Secret sem fór fram um helgina. Um er að ræða svokallaðan Fantasíu-brjóstahaldara sem er sá dýrasti í sögu fyrirtækisins.

Tískusýningin er þekktur viðburður hjá fyrirtækinu sem árlega heldur stærðarinnar sýningu með stærstu fyrirsætum heims, sem Victoria's Secret kallar englana sína.

Jenner klæddist stuttu gegnsæju pilsi, glærum hælaskóm og var með hvíta fjaðurvængi. Brjóstahaldarinn vakti þó hvað mesta athygli.

Brjóstahaldarinn var skreyttur 4.410 náttúrulegum demöntum sem og á milli brjóstanna hékk 75 karata skærgulur demantur. Alls komu fimmtán gullsmiðir að gerð hans og tók vinnan meira en eitt þúsund klukkustundir. Brjóstahaldarinn vegur tæplega 2 kíló og er metinn á um 6 milljarða króna.

Hannaður úr gulli og demöntum

Bandaríski skartgripahönnuðurinn Jacob Arabo, stofnandi Jacob & Co., var fenginn til samstarfs við Victoria’s Secret við gerð brjóstahaldarans. Arabo hefur áður hannað skartgripi fyrir heimsfrægar stjörnur á borð við Madonnu, Rihönnu, Elton John og Victoriu Beckham.

Hugmyndin var að hanna skartgrip sem hægt væri að klæðast eins og brjóstahaldara. Hann er því eingöngu gerður úr gulli og demöntum og er án hefðbundins efnis. Demantarnir voru slípaðir á sjö mismunandi vegu og notaðar voru fjórar aðferðir við að festa þá til að draga fram ljóma þeirra.

Adam Selman, listrænn stjórnandi Victoria’s Secret, segir Kylie hafa orðið fyrir valinu vegna gríðarlegra áhrifa hennar á menningu og tísku. Kylie er með um 380 milljónir fylgjenda á Instagram og er ein vinsælasta stjarna samfélagsmiðilsins.

Þrjátíu ára saga

Fantasíuhaldarinn var fyrst kynntur til sögunnar árið 1996 þegar ofurfyrirsætan Claudia Schiffer sýndi brjóstahaldara sem var metinn á um 121 milljón króna.

Árið 1999 klæddist Heidi Klum útgáfu sem metin var á um 1,2 milljarða króna og ári síðar sýndi Gisele Bündchen brjóstahaldara að verðmæti um 1,8 milljarða króna.

Síðast sást Fantasíu-haldarinn árið 2018 þegar Elsa Hosk sýndi brjóstahaldara sem metinn var á um 121 milljón króna.

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅