Það allra heitasta í vetur
Hausttískan er mætt í allri sinni dýrð. Það sem er það besta við þennan tíma er að fötin eru í senn praktísk og falleg. Það er örlítil nostalgía í loftinu, töffaraskapur en einnig fínlegheit og ríkuleg efni í kvöldfatnaði.
Satín og kögur
Kvöldfatnaðurinn horfir til Art Deco-tímabilsins með nútímalegri nálgun. Þetta eru kvöldjakkar og kápur úr dýrðlegu flaueli, satín og fínlegt kögur og flíkur skreyttar steinum. Þetta sást vel hjá franska hátískuhúsinu Chanel þar sem blúndu, satíni og steinum var blandað saman í haust- og vetrarlínunni.
Alvöru ullarpeysa
Ein af þessum flíkum sem við verðum að eiga þegar kuldinn nálgast. Kasmírpeysur í gráum og brúnum tónum verða áberandi í vetur, sérstaklega stuttar með stórum rúllukraga.
Belti með sylgju
Nú gætu einhverjir andvarpað og hugsað, eru þessi belti komin aftur? Svarið er já. Stórar sylgjur á leðurbeltum, paraðar við buxur sem eru lágar í mittið, stuttermabol eða satínskyrtu. Áður en þú fjárfestir í slíku belti skaltu athuga hvort þú finnir ekki svipað hjá nákomnum ættingja.
Hár kragi
Jakkar með háum kraga hafa verið áberandi síðustu misseri, bæði í einhvers konar íþróttaefni, þykkri bómull og nú leðri. Leðurjakki í þessum stíl er það sem þú ættir að vera að fjárfesta í núna og notaðu hann við allt í fataskápnum.
Allt svo áreynslulaust
Franska tískuhúsið Isabel Marant er hvað þekktast fyrir að ná fram þessum ekta og áreynslulausa töffarastíl. Það tókst heldur betur fyrir haustið og á tískusýningunni voru eldrauðar gallabuxur stíliseraðar með sebrastígvélum og gallajakka. Eins og þú hafir klætt þig á fimm mínútum og henst út. Það þarf ekki að hugsa allt út í gegn.
Rúskinnsstígvél
Það eru líkur á að einhverjir hafi fjárfest í svona stígvélum í fyrra, sem eru góðar fréttir, því þau munu enn vera í tísku í vetur. Notaðu þau við pils eða víðar buxur.
Hnésíð pils
Síðustu árstíðir hafa stuttbuxur ráðið ríkjum en nú taka kvenlegu pilsin við. Pils geturðu sett saman við þunnar prjónapeysur fyrir dagsdaglega notkun eða satínskyrtu þegar þú ert að fara eitthvað fínna. Þetta verður mest notaða flíkin í vetur.
Vinnubuxur
Við erum ekki alveg að tala um Snickers-buxurnar, en nálægt því þó. Vinnubuxurnar lyfta heildarútlitinu aðeins upp og gera þig að meiri töffara. Þetta eru buxur úr bómullar- eða gallaefni og eru með stærri vösum á hliðunum. Ótal margar eru hræddar við þessar buxur en það er um að gera að máta.
Síðar loðnar kápur
Þessi tíska hentar Íslandi vel. Finndu hlýlegustu og mýkstu gerviloðkápuna og hún verður besti vinur þinn í vetur. Þessi flík er ekki aðeins til að nota fínt heldur bara hvenær sem er, bæði í erindisleysu og erindagjörðir um allan bæ. Aukastig fyrir hatt í stíl.
Inniskórnir
Þægindin geta alveg verið í fyrirrúmi í vetur því flatir inniskór, úr leðri, skreyttir eða loðnir, hafa verið áberandi hjá tískuhúsunum. Þessa er ekki hægt að nota í versta veðrinu en þá má hafa í skópoka og taka með í vinnu. En passaðu að þetta séu ekki Birkenstock-sandalarnir, heldur skór sem eitthvað er áhugavert við.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗











