„Ég er alveg háð því að sofa með andlitsmaska“
Í nýjum þætti Dagmála tala þær Edda Gunnlaugsdóttir og Marta María Winkel um húðvörur sem eru ætlaðar til að minnka hrukkur og fínu línurnar sem myndast í andlitinu. Þetta eru yfirleitt vörur fyrir þær sem vilja fresta húðmeðferðum eins og bótoxi og öðrum fylliefnum.
„Þetta eru krem sem eru fyrir þær sem eru ekki tilbúnar að láta sprauta í sig bótoxi eða öðrum fylliefnum, þær sem vilja prófa fyrst að ná árangri með kremum,“ segir Edda.
„Er það hægt?“ spyr Marta María.
„Ég veit það ekki. Ég held þú náir aldrei jafn góðum árangri en það má reyna. En góð krem gera svo mikið annað fyrir mann og ég finn það sérstaklega þegar það kólnar, hvað það er gott að setja á sig gott og alvöru krem. Maður þarf þetta minna yfir sumartímann,“ segir Edda.
„Ég er alveg háð því að sofa með andlitsmaska og ég rótera alveg. En maskinn frá Bláa lóninu, við notum hann mjög mikið, hann er góður. Svo nýi varamaskinn frá þeim, ég er alveg að maka honum á varirnar og svo þarf maður eiginlega að leggjast út af á meðan hann er að sogast inn svo hann endi ekki allur á koddanum,“ segir Marta María.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗