„Ég er, eins og þú sérð, smá unglingaveik í dag“
Gamlir skór voru umræðuefni í nýjasta Dagmálaþætti Mörtu Maríu Winkel og Eddu Gunnlaugsdóttur á dögunum. Þær voru báðar klæddar í skó sem voru keyptir fyrir frekar mörgum árum og þykja enn flottir í dag, eða hvað?
„Ég held að mínir myndu nú alveg flokkast sem vintage,“ segir Marta María.
„Þeir voru keyptir árið 2005 í Flórens, í alveg svakalega miklum hita. Nema hvað, 21 ári seinna, er ég enn þá að draga þá fram. Þetta var svona minn sumarauki, vegna þess að frostið er alveg að mæta og ég ætla að nýta síðustu dagana til að vera berfætt á skónum,“ segir hún.
Marta María segir að hún hafi keypt skóna þegar hún var á því tímabili að kaupa sér eitthvað eitt dýrt á hverju ári.
„Skórnir voru þetta dýra sem ég keypti sumarið 2005. Þeir kostuðu örugglega skildinginn, þetta eru Prada-skór, en maður getur nú aldeilis flokkað þetta sem lífstíðareign vegna þess að ég er enn að nota þessa skó. En þú ert líka í gömlum skóm,“ segir hún.
„Ég er, eins og þú sérð, smá unglingaveik í dag,“ segir Edda.
„Hvað gerðist?“
„Ég er í svona vinnugalla og gömlum skóm frá Isabel Marant sem ég keypti árið 2012. Þá voru þessir skór nýkomnir og ég var bara að missa mig,“ segir Edda.
„Ég var í París með mömmu og ég dröslaði henni þvert yfir borgina í grenjandi rigningu og keypti þessa skó. Þá var Isabel Marant ekki með jafn margar búðir í borginni og núna. Ég notaði þá mjög mikið þá en svo eru svona tvö ár síðan ég sá að þeir voru að koma aftur. Svo ég sótti þá upp á háaloft og er búin að vera að stara eitthvað á þá í skápnum síðan,“ segir hún.
„En svo er ég nýkomin frá París og þá voru einhverjir unglingar í þessum skóm. Svo ég hugsaði, ég get líka verið unglingur, ég á svona skó.“
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗