„Við sjáum þetta sem ákveðna viðurkenningu“

Linnea Ahle er stofnandi íslensku barnavöruverslunarinnar vinsælu Petit.

Linnea Ahle er stofnandi íslensku barnavöruverslunarinnar vinsælu Petit. Samsett mynd/Karítas

Íslenska barnafataverslunin Petit gaf nýverið út línu af útifötum í samvinnu við danska barnavörurisann Konges Sløjd. Hönnun línunnar hófst fyrir rúmu ári þegar Linnea Ahle, stofnandi Petit, og hönnunarteymi Konges Sløjd hittust í Kaupmannahöfn.

„Við höfum átt í góðu sambandi við Konges Sløjd frá því við hófum sölu á merkinu í verslun okkar fyrir um tíu árum. Fyrir fáeinum árum fóru þau svo að óska eftir okkar áliti á vörunum þeirra og hafa gert síðan.

Það má kannski rekja þetta til þess að þau hafi tekið vel í ábendingar og þá sérstaklega varðandi útifötin. Fyrir rúmu ári buðu þau okkur svo að búa til útifatalínu sem við hönnuðum saman,“ segir Linnea um samstarfið.

„Við vildum sjá útifötin í pastellitum sem er ekki átt sem Konges Sløjd hefur farið í áður. Bara það gerir ásýndina öðruvísi en auk þess bættum við í endurskinsfleti á fötunum með okkar dimma íslenska vetur í huga. Klassísku gúmmíböndunum undir skófatnað var einnig bætt á regnfötin sem okkur þótti betra og sérstaklega praktískt að bjóða upp á stök bönd til sölu svo hægt sé að lengja notkunartíma fatnaðarins.“

„Við sjáum þetta sem ákveðna viðurkenningu og erum stolt af því trausti sem jafn stórt merki og Konges Sløjd ber til okkar.“ Ljósmynd/Aðsend

Linnea hefur verið viðskiptavinur dönsku barnafataverslunarinnar Petit í tíu ár og hefur nú hannað með þeim útifatalínu. Ljósmynd/Aðsend

Hönnunarferlið hófst fyrir ári síðan.

Hönnunarferlið hófst fyrir ári síðan. Ljósmynd/Aðsend

Fæst aðeins hér á landi

Linnea segir ferlið hafa verið áhugavert og skemmtilegt og þá sérstaklega gaman að geta vakið athygli á Íslandi í barnafataheiminum.

„Við sjáum þetta sem ákveðna viðurkenningu og erum stolt af því trausti sem jafn stórt merki og Konges Sløjd ber til okkar. Á sama tíma erum við bara með verslun á Íslandi svo okkar einbeiting verður áfram þar,“ segir hún.

Heldurðu að athyglin að versluninni muni nú ná út fyrir Íslandsmarkað?

„Við fáum nú þegar ansi margar pantanir erlendis frá svo það verður vonandi bara aukning þar á. Þessi lína verður eingöngu til sölu í okkar verslun svo það er alveg viðbúið að áhugi erlendis frá aukist og að við fáum fleiri heimsóknir í vefverslunina í það minnsta. Konges Sløjd hefur sprungið út í Asíu undanfarið og við sjáum það til dæmis strax að á þessum örfáu dögum frá útgáfu hafa bæst í pantanir þaðan.“

Línan kemur í mjög takmörkuðu upplagi og er einungis fáanleg hér á landi. Ljósmynd/Aðsend

Fötin eru hönnuð með íslenskar aðstæður í huga.

Fötin eru hönnuð með íslenskar aðstæður í huga. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅