Deilir fataskáp með tvíburabróður sínum

Tískuáhugi Emmu Kjartansdóttir kviknaði í menntaskóla.

Tískuáhugi Emmu Kjartansdóttir kviknaði í menntaskóla. Ljósmynd/Aðsend

Emma Kjartansdóttir, er nýbyrjuð í fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Emma leggur sig fram með að sýna metnað í klæðaburði og finnst skemmtilegt að raða saman flíkum á óvenjulegan hátt.

Tískuáhugi Emmu kviknaði fyrir alvöru þegar hún byrjaði í menntaskóla.

„Mér fannst ekki nóg að mæta í skólann bara til að læra heldur vildi ég líka sýna mig og sjá aðra. Mér byrjaði að finnast gaman að skera mig úr fjöldanum og taka áhættu. Það varð svo miklu skemmtilegra að vakna á morgnana og þegar ég fór að setja metnað í klæðaburð dagsins.“

Hverju tekur þú eftir í klæðaburði annars fólks?

„Ég þykist geta séð hvenær manneskja klæðir sig eftir eigin höfði og hvenær hún klæðir sig til að þóknast öðrum eða fylgja tískustraumum. Það hefur eitthvað með líkamstjáningu og öryggi að gera. Það sem mér finnst skemmtilegast að sjá eru stórir karakterar sem hafa sína eigin sýn. Stundum er eins og þau hafi ekki bara mótað sinn eigin stíl heldur líka sína eigin veröld, sem mér finnst algjörlega til fyrirmyndar.“

Emma segir gott þegar fólk er nógu öruggt til að finna eigin stíl í stað þess að elta tískustrauma. Ljósmynd/Aðsend

Skipta föt máli?

„Klæðnaður er listform og leið til sjálfstjáningar. Fötin sem maður klæðist hafa svo mikil áhrif á líðan og hvernig maður velur að sýna sig fyrir heiminum.“

Finnst gaman að koma fólki á óvart

Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?

„Stíllinn minn er oftast frekar kvenlegur en ég vil eiginlega alltaf hafa eitthvað aðeins hrátt eða vítt á móti. Ég er mjög hrifin af því að blanda saman andstæðum eins og einhverju mjög elegant og rómantísku við eitthvað götótt eða rifið. Eða einhverju gamaldags við eitthvað nútímalegt. Það er bara geðveikt gaman að koma fólki á óvart með því að blanda saman hlutum sem ættu ekki endilega að passa saman.“

Emma elskar að koma fólki á óvart þegar hún raðar saman flíkum. Ljósmynd/Aðsend

Hvert sækir þú innblástur?

„Ég horfi í allar áttir og vel það sem mér líkar best og blanda því síðan saman eða breyti því. Ég held líka að ákveðinn ótti við að vera of venjuleg veiti mér mikinn innblástur. Ég byrjaði að klæða mig vel þegar ég fattaði hvað það skiptir mig miklu máli að vera pínu öðruvísi og finnst gaman að fylgja tískunni að einhverju leyti en setja alltaf minn eigin svip á hana.“

Emma reynir að vera aðeins öðruvísi.

Emma reynir að vera aðeins öðruvísi. Ljósmynd/Aðsend

Reynir að forðast jogginggalla

Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?

„Klæðaburður minn fer algjörlega eftir skapinu hverju sinni. Suma daga vakna ég þreytt og pirruð og langar bara að klæðast þægilegum fötum. Aðra daga vakna ég í stuði og langar að setja meiri metnað í klæðaburð dagsins. Hins vegar þekki ég sjálfa mig vel og hef því unnið hart að því að búa til safn af flíkum sem henta hvaða skapi sem er. Flíkur sem eru bæði flottar og þægilegar á sama tíma. Þó að ég sé stundum löt þá reyni ég að forðast jogginggallann.“

Íþróttaföt geta verið smart við skyrtu og einstakt vesti. Hér sést hvernig Emma notar íþróttabuxur á flottan hátt. Ljósmynd/Aðsend

En þegar þú ferð eitthvert fínt?

„Það sama gildir um þegar ég fer eitthvert fínt. Til þess að geta notið mín þarf mér að líða vel, en mér líður vel ef ég klæðist þægilegum fötum. Ég laðast oft að víðum eða of stórum flíkum og finnst flott að blanda þeim saman við eitthvað aðeins stelpulegra.“

Áttu uppáhaldsflík?

„Uppáhaldsflíkin mín er röndótt skyrta sem hægt er að hneppa upp að miðjum hálsi, sem ég keypti notaða í Búdapest. Ég get notað þessa skyrtu við nánast hvaða tilefni sem er þar sem auðvelt er að dressa hana upp eða niður. Skyrtan passar líka við allt og passar mér fullkomlega.“

Róndótt skyrta sem Emma keypti í Búdapest er í miklu uppáhaldi. Ljósmynd/Aðsend

Hver er mest notaða flíkin í fataskápnum?

„Það mætti eiginlega segja að ég eigi tvöfaldan fataskáp þar sem við Óliver, tvíburabróðir minn, deilum flestum fötunum okkar. Við deilum oft verðinu á nýjum flíkum sem þýðir að við fáum þær í rauninni á hálfvirði. En uppáhaldsflíkin mín eru einmitt rifnar gallabuxur sem við eigum saman og höfum notað í mörg ár.“

Emma notar rifnar gallabuxur sem hún á með bróður sínum mjög mikið. Ljósmynd/Aðsend

Leitar að flatbotna stígvélum

Hver eru verstu kaup sem þú hefur gert?

„Ég á það til að ofpeppast og hugsa ekki málin áður en ég kaupi hluti. Oft hefur það endað með því að ég kaupi mér eitthvað sem passar ekki á mig eða eitthvað sem er skemmt og ég þykist ætla að laga, en geri það svo aldrei. Ég hef eytt allt of miklum pening í óvandaðar flíkur úr lélegu efni sem rifnuðu eða duttu í sundur.“

Emma blandar saman gófum fötum og aðeins stelpulegri flíkum.

Emma blandar saman gófum fötum og aðeins stelpulegri flíkum. Ljósmynd/Aðsend

Hvar verslar þú helst?

„Ég versla næstum alltaf í búðum með notaðan fatnað eða vintage-búðum. Þær bestu á Íslandi að mínu mati eru Mamma Mia Vintage og Verzlanahöllin, enda fer ég aldrei tómhent þaðan út.“

Emma versla flest sín föt notuð.

Emma versla flest sín föt notuð. Ljósmynd/Aðsend

Hvert er besta tískuráð sem þú hefur fengið?

„Meikyō shisui er japanskt orðatiltæki þýðir „tær spegill, kyrrt vatn“. Það snýst um að vera rólegur og trúr sjálfum sér, óháð því sem gengur á í kringum mann. Mér finnst það mjög gott tískuráð líka, að finna sinn eigin smekk og vera nógu öruggur til að þurfa ekki stöðugt að elta tískustrauma eða samþykki annarra.“

Emma er nú á fyrsta ári í fatahönnun í LHÍ.

Emma er nú á fyrsta ári í fatahönnun í LHÍ. Ljósmynd/Aðsend

Hvað er á óskalistanum fyrir haustið?

„Fyrir utan lítið trampólín, langar mig mest í góð flatbotna leðurstígvél. Ég hef stöðugt leitað að hinum fullkomnu leðurstígvélum í mörg ár en aldrei tekist að finna nein sem standast væntingar mínar. Ég held að ég sé vandamálið í þetta sinn þar sem ég er með allt of nákvæma hugmynd í hausnum af þeim skóm sem mig langar í. Kannski bið ég einfaldlega um of mikið.“

Emma notar meðal annars buxur af tvíburabróður sínum.

Emma notar meðal annars buxur af tvíburabróður sínum. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅