77 ára og notar bara eina húðvöru
Fatahönnuðurinn Vera Wang er 77 ára og ótrúlega ungleg miðað við aldur. Þrátt fyrir það er húðrútínan hennar ekki flókin. Wang greindi frá hversu ótrúlega einföld húðrútínan hennar er á dögunum.
„Ég er með mjög einfalda húðrútínu,“ sagði Wang nýlega að því fram kemur á vef Page Six. „Ég þvæ bara á mér andlitið og nota svo rakakrem... ekki 18 skref.“
Húðrútína fólks er sífellt að verða flóknari og börn að verða yngri þegar það byrjar að nota krem. Eitt er víst að Vera Wang notar að minnsta kosti ekki 18 krem til þess að líta vel út. Hvort sem hún fer einhverjar aðrar leiðir eða ekki er annað mál.
Ekki góð í að farða sig
Þegar kemur að förðun er hún heldur ekki að flækja hlutina og viðurkennir að hún sé ekki góð í að mála sig. Þegar kemur að því að farða augun notar hún Urban Decey pallettur. „Ég elska þá alla,“ sagði Wang. „Þeir eru klassískir eins og ég er núna.“
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/56/1685614.jpg)
