„Þetta er skuggahlið þess að hafa pervertískan áhuga á fatnaði“
Söfnunarárátta þegar kemur að fatnaði var eitt umræðuefni í nýjasta þætti Dagmála þegar Marta María Winkel og Edda Gunnlaugsdóttir spjölluðu saman. Þó að það gæti truflað aðra á heimilinu að eiga mikið af fötum komust þær að því að mörg önnur áhugamál væru sennilega verri.
„Ég er svolítið að fara með þetta út í bílskúr og geyma. En svo er ég líka með einhverja fataskápa sem tilheyra ekki fataherberginu og það er svona stoppistöð áður en flíkurnar fara annaðhvort í Buy My Chic eða ég gef einhverjum þær. Þetta er mjög mikill glundroði sem enginn skilur,“ segir Marta María.
„Sumir eru með Excel-heila en aðrir með einhvern svona glundroða. En þó að ég sé svolítið þannig þá veit ég samt alltaf hvar allt er,“ segir Edda.
„Þetta er skuggahlið þess að hafa svona pervertískan áhuga á fatnaði. Ég meina, er þetta ekki bara allt í lagi? Af öllu sem þú getur verið að gera í lífinu, þá gæti skuggahlið einhvers annars áhugamáls verið miklu verri,“ segir Marta María.
„Auðvitað. Mér finnst ekkert að þessu. Þetta truflar samt kannski aðra á heimilinu,“ segir Edda og hlær.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗