„Það er ekki hægt að hafa einhverja Jysk-hillu á veggnum“
Marta María Winkel sagðist njóta sín best þegar hún er að lakka húsgögn í nýjum Dagmálaþætti ásamt Eddu Gunnlaugsdóttur. Hún er nýbúin að lakka borðstofuborðið sitt grænt.
„Þetta er svona grunnelementið mitt, að vera að lakka einhver húsgögn. Ég veit ekki hvað ég hef málað margar íbúðir að innan en ég hef ekkert verið í þessum ham núna. Þannig að þegar ég var búin að lakka borðið þá hugsaði ég hvoert það væri ekki eitthvað annað sem ég ætti að lakka grænt,“ segir Marta María.
„Næst þegar þú kemur heim til mín verða bara háglansandi grænir hlutir á furðulegum stöðum. Þá veistu hvað hefur gerst,“ segir hún og hlær.
„Það er betra en svart háglans sem allir voru að gera á tímabili,“ segir Edda.
„Það var náttúrulega svona árunum fyrir hrun. Mér finnst reyndar háglans svart í réttu umhverfi finnst mér alltaf flott sko,“ segir Marta María.
„En það þarf að vera ákveðinn glæsileiki í húsgögnunum í kring. Það er ekki hægt að hafa einhverja Jysk-hillu á veggnum.“
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗