Þegar aðhaldsflíkur enda í landfyllingu: Er það gott eða slæmt?

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um aðhaldsföt í landfyllingum. Ljósmynd/Kári Sverriss

Marta María Winkel vill ekki vita hvað hún hefur keypt mikið af aðhaldsfatnaði í gegnum tíðina sem hefur endað í landfyllingu.

Klæðaburður kvenna umbreyttist á fyrri hluta 20. aldar, á árunum 1910-1930, þegar konur lögðu lífstykkjunum og fóru að klæðast frjálslegri fatnaði. Lífstykkið hafði lifað góðu lífi í Evrópu frá árinu 1500. Það var einmitt á þeim tíma sem konur af efri stéttum fóru að klæðast lífstykkjum til að móta mittið og til að halda bolnum uppréttum. Konur áttu að vera eins og dúkkur, nema náttúrlega ambáttir heimsins, en það er önnur saga og dýpri.

Á Viktoríutímanum klæddust konur lífstykkjum til að mjókka mittið og ýkja vöxtinn þannig að hann yrði alveg eins og í TAB-auglýsingunni sem sýnd var í sjónvarpinu í kringum 1980. Coca-Cola kom svo með nýjan drykk á markað 1982 sem heitir Diet Coke sem varð til þess að TAB-drykkja snarminnkaði og að lokum var framleiðslu á drykknum hætt. Í dag erum við mannfólkið forrituð þannig að við höldum að við verðum eins og konan í TAB-auglýsingunni ef við neglum í okkur sykurlausum drykkjum.

Þær sem hafa einhvern tímann á ævinni troðið sér í allt of lítil aðhaldsföt vita að konur eru ekki líklegar til stórræða í slíkum búnaði. Það er ekki hægt að færa fjöll í aðhaldsnaríum.

Ég hef kosið að taka ekki saman kostnaðinn sem hlotist hefur af kaupum á aðhaldsflíkum sem hafa oftar en ekki lent í fatagámi eftir fyrstu notkun. Það er auðvitað gott og blessað að leggja raunverulega eitthvað af mörkum til samfélagsins. Ég veit þó ekki hvort samfélagið var akkúrat að biðja um notuð aðhaldsföt af sjálfri mér til að nota í landfyllingar úti á Granda.

Hér eru keppendur í Ungfrú Reykjavík í stífum undirbúningi árið 1999. Hafdís Jónsdóttir eigandi World Class er hér til vinstri á myndinni í þröngum kjól með topp. mbl.is/Halldór Kolbeins

Allt byrjar einhvers staðar.

Ætli þetta hafi ekki byrjað þegar ég var lítil. Það er fitandi að drekka mikið kakómalt og borða aðallega mat sem hækkar blóðsykurinn. Á áttunda og níunda áratugnum var náttúrlega enginn að spá í mataræði barna og alls ekki að velta fyrir sér stöðu á blóðsykri nema einhverjir heilsunöttarar.

Á sama tíma reið yfir mikil fegurðarbylgja. Ráðamenn þjóðarinnar stærðu sig af því að hér, á þessari litlu eyju í Atlantshafi, fæddist bara fallegt fólk. Það varð því að sérstakri þjóðaríþrótt að keppa í fegurð, sem er ekki skrýtið því það var töluvert sigursælla en að keppa í körfubolta eða í krikket.

Á níunda áratugnum fannst þó „lausn“. Fegurðardrottningar fóru að auglýsa sokkabuxur sem gerðu tvennt. Þær bæði ýttu inn vömb og ýttu afturenda upp um nokkra sentímetra. Þetta var bylting og svona til að setja þetta í samhengi þá var þetta löngu áður en lýtalæknar fóru að gera sérstakar lýtaaðgerðir þar sem fita var færð á milli líkamsparta og þetta er líka löngu áður en mjaðmalyftan varð vinsælasta æfingin hjá konum á aldrinum 18-35 ára.

Það var þó einn ókostur við þessar töfrasokkabuxur. Þær áttu það til að rúllast niður á miðja vömb og þá varð þetta svæði einhvern veginn svolítið eins og hangikjötskeppur á öðrum degi jóla.

Hver líkami er bara með ákveðið innra rými sem þýðir að ekki er hægt að smokra nylonflík yfir líkamann til þess að minnka ummál hans. Aukahúð finnur sér alltaf farveg og kemur út á þeim stöðum sem eru ekki vakúmpakkaðir. Ég þurfti að hnippa í sjálfa mig þegar ég var næstum því búin að panta mér aðhaldssamfesting með sérstökum púðum aftan á til að stækka ákveðinn líkamspart.

Þetta minnti mig á að það er svo margt hægt að gera annað í lífinu en að panta föt sem enda í landfyllingu. Bæ!

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅