„Þarna sjást allir mínir djöflar“

Vel hönnuð fataherbergi voru til tals í nýjum Dagmálaþætti Mörtu Maríu Winkel og Eddu Gunnlaugsdóttur. Þá þarf helst einhver sem þekkir til vandamálsins að eiga mikið af fötum að koma að hönnuninni. 

„Það þarf einhver sem á ógeðslega mikið af fötum að hanna fataherbergi,“

„Það er alveg gott að hafa einhvern svona framtíðardraum,“ segir Marta María. 

„Ertu að tala um nýtt ráðgjafafyrirtæki sem við getum stofnað?“ spyr Edda. 

„Einmitt. Það er samt þannig að þegar ég er búin að strauja öll fötin mín og búin að litaraða öllu og allt er í ákveðnu kerfi þá er ég mjög ánægð með þetta. En þegar allt er í óreiðu þá er ég einhvern veginn þannig að ég þarf bara nýtt fataherbergi,“ segir Marta María. 

„Ég mætti skammast mín fyrir mitt. Ég er bara með lítinn skáp í rauninni og þetta kemst einhvern veginn fyrir en samt ekki. Þarna sjást allir mínir djöflar,“ segir Edda.

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni. 

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅