Fimm snyrtivörur sem þú þarft núna

Hér má sjá nokkrar snyrtivörur sem ýta undir fegurðina.

Hér má sjá nokkrar snyrtivörur sem ýta undir fegurðina. Samsett mynd

Ef hárið er vel nært, húðin ljómandi og augabrúnirnar vel mótaðar þá ertu líklega fær í flestan sjó. Eða hvað?

Eitt af því sem allar konur ættu að kunna er að bera á sig augnskugga. Ekki síst þegar aldurinn færist yfir. Þá skiptir máli að velja rétta liti, ekki of dökka, og setja bara lítið magn af augnskugga á augnlokið. Lítið magn ýtir undir náttúrulega fegurð á meðan mikið magn getur klínst út um allt. Þessi litapalletta frá Sisley Paris er ansi góð. Fjórir jarðlitir hittast í góðu stuði og passa fyrir þær sem taka haustlitaþema alvarlega. Svo eru það varirnar. Varalitalínan Rouge Allure frá Chanel er löngu búin að sanna sig en varalitirnir í línunni eru mattir og mjög töfrandi. Það kemur mjög vel út að setja lítinn varalit, bara rétt dúmpa yfir varirnar þannig að við lítum út fyrir að vera yfir okkur ástfangnar. Svo er það augabrúnagelið frá Pixi sem heldur augabrúnum á réttum stað án þess að þær verði eitthvað vandræðalega ofmótaðar.

Sisley Paris – Phyto-Eye Palette geymir töfra fallegrar augnförðunar. Litapallettan Bois de Rose inniheldur fjóra liti sem má leika sér með til að skyggja augnlokið fallega. Allir litirnir geta farið einir og sér á augnlokið en svo er klassískt að setja dekksta litinn í kantana og ljósa sanseraða litinn í augnkrókinn. Fæst á Beautybox.is og kostar 18.790 kr.

K18 – FutureIQ Biomimetic Hair Longevity Serum er fyrsta fjölvirka kerfið sem vinnur gegn ótímabærri öldrun hárs og hársvarðar. Það styrkir hársvörðinn og getur dregið úr hárlosi. Það fæst á Beautybar.is og kostar 20.630 kr.

Guerlain Abeille Royale Youth Wathery Oil Serum nærir húðina vel og gefur henni allt sem hún þarf þessa dagana. Það þarf að hrista serumið fyrir notkun því það eru flögur í því sem mega ekki setjast bara á botn glassins. Þær þurfa að komast á andlitið til að gera gagn. Guerlain fæst í Hagkaup.

Chanel Rouge Allure Velvet-varaliturinn er með þessa hárréttu áferð sem er svo falleg. Varaliturinn er mattur og helst vel á vörunum. Það er fallegt að dúmpa honum létt yfir varirnar þannig að þær fái lit en verði ekki eins og rauði liturinn hafi verið stimplaður á. Hann kemur í 20 mismunandi litum og því ættir þú að geta fundið réttan litatón. Chanel fæst í Hagkaup og hjá Apótekaranum.

Augabrúnagel sem segir sex! Pixi Brow Tamer er glært augabrúnagel sem heldur augabrúnunum á sínum stað. Hægt er að setja blýant í augabrúnir og móta þær með augabrúnagelinu eða öfugt. Það fæst í Skincarelab í Smáralind og kostar 2.450 kr.

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅