Unnur Birna og Daði í essinu sínu
Það var öllu til tjaldað í Smárabíói þegar Sjónvarp Símans Premium efndi til frumsýningarteitis vegna seríunnar Elmu sem er byggð á sögu eftir Evu Björgu Ægisdóttur. Bókin heitir Marrið í stiganum og fékk góða dóma þegar hún kom út. Óhætt er að segja að Eva Björg sé glæpasagnadrottningin í dag og hafa bækur hennar farið vel ofan í þjóðina. Bækur hennar hafa komið út í 20 löndum og fer aðdáendahópur hennar vaxandi.
Unnur Birna Backman fer með hlutverk rannsóknarlögreglukonunnar Elmu Jónsdóttur en hún var einmitt mætt í Smárabíó til að fagna seríunni. Nikulás Hansen Daðason einnig í aðalhlutverki í þáttunum.
Sagan segir frá Elmu sem flytur aftur upp á Akranes eftir að líf hennar fer hálfpartinn í skrúfuna. Hún bindur miklar vonir við að ná að kjarna sig á heimaslóðunum en þá tekur líf hennar óvænta stefnu. Fljótlega dregst hún inn í rannsókn sem tengist gömlum leyndarmálum bæjarins og hvarfi átta ára stúlku 25 árum áður.
Glassriver framleiðir Elmu.
Árni Grétar Finnsson aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur er hér ásamt Melkorku Þöll Vilhjálmsdóttur og Sesselju Katrínu Árnadóttur. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






















