Unnur, Fanney Dóra og Rósa María í gufustemningu
Íslenska lífsstílsmerkinu Northél var fagnað á dögunum á glæsilegum viðburði á veitingastaðnum Olifa í Reykjavík. Góð stemning var á viðburðinum þar sem helstu áhrifavaldar landsins voru saman komnir. Á meðal gesta voru þau Pattra Sriyanonge, Andrea Röfn Jónasdóttir og Unnur Backman.
Northél býður meðal annars upp á vandaðar vörur fyrir bað- og gufuupplifun, allt frá mjúkum sloppum og handklæðum úr lífrænni bómull yfir í ilmvörur og fylgihluti sem gera hversdagslegar stundir að litlum vellíðunarathöfnum. Konurnar á bak við merkið eru þær Halldóra Þorvaldsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir og Selma Jóhannsdóttir.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗














