Steinunn Sigurðardóttir bauð í teiti

Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur las upp úr bókinni Veisla þrjú í Tjarnarbíói. mbl.is/Karítas

Rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir bauð í útgáfuboð í Tjarnarbíói á dögunum. Það var til að fagna Veislu þrjú sem er nýjasta höfundarverk Steinunnar. Veisla þrjú er ástarsaga þar sem rómantík og hamslaus fögnuður koma við sögu hjá konu sem tókst ekki að deyja. Frásögnin er barmafull af húmor og visku. 

Bókin fjallar um LínLín sem bjargast úr bráðum háska. Hún er aftur komin á byrjunarreit eftir að hafa upplifað hið óbærilega; að missa barn. Þegar hún kemst á fætur finnur hún fyrir lífsþorsta og tilhlökkunar. 

Steinunn Sigurðardóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir skáldsöguna Ból sem er dimmtóna og dramatísk – en aðalpersónan LínLín stígur hér fram á ný bæði breytt og söm, tilbúin í næsta dans.

Freyr Eyjólfsson fjölmiðlastjarna átti stórleik í útgáfuboðinu hjá Steinunni. Hann tók viðtal við hana uppi á sviði og var í sínu besta elementi. Eins og sjá má á ljósmyndum sem Karítas Sveina Guðjónsdóttir tók í útgáfuboðinu voru allir í essinu sínu. 

Freyr Eyjólfsson, Ingunn Ásdísardóttir, Eva Þengilsdóttir og Gunnar Snorri.

Freyr Eyjólfsson, Ingunn Ásdísardóttir, Eva Þengilsdóttir og Gunnar Snorri. mbl.is/Karítas

Freyr Eyjólfsson tók viðtal við Steinunni Sigurðardóttur uppi á sviði í boðinu. mbl.is/Karítas

Jón Bjarni Atlason og Atli Ingibjargar Gíslason.

Jón Bjarni Atlason og Atli Ingibjargar Gíslason. mbl.is/Karítas

Katla Ársælsdóttir og Amna.

Katla Ársælsdóttir og Amna. mbl.is/Karítas

Sigrún Steingrímsdóttir og Gunnar Snorri.

Sigrún Steingrímsdóttir og Gunnar Snorri. mbl.is/Karítas

Áslaug Pálsdóttir Ragnheiðardóttir og Fríða Pálsdóttir.

Áslaug Pálsdóttir Ragnheiðardóttir og Fríða Pálsdóttir. mbl.is/Karítas

mbl.is/Karítas

mbl.is/Karítas

Viðar Víkingsson, Halldór Stefánsson og Þorsteinn Hauksson.

Viðar Víkingsson, Halldór Stefánsson og Þorsteinn Hauksson. mbl.is/Karítas

Steinunn áritaði bækur í boðinu.

Steinunn áritaði bækur í boðinu. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅