Systurnar Margrét og Sæunn fögnuðu saman

Margrét og Sæunn Kjartansdætur. Sæunn skrifar bókina Margbrotna systir mín um Margréti systur sína. mbl.is/Eyþór

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, fagnaði útgáfu bókarinnar Margbrotna systir mín á dögunum með systur sinni Magréti Kjartansdóttur. Það var stappað í safnaðarheimili Neskirkju þar sem útgáfuhófið fór fram. 

Systurnar geisluðu í útgáfuhófinu og fór ekki fram hjá neinum að þær voru mættar í veisluna. Sæunn klæddist hvítri dragt en Margrét systir hennar, umfjöllunarefni hennar, var í eldrauðum fötum. 

Ævintýralegt lífshlaup

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn skráði sögu systur sinnar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtti Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. 

Ásta Sigurðardóttir, Kristín Boland, Ásdís Ásbergsdóttir, Unnur Einarsdóttir, Hrönn Norðdahl. og Signý Guðbjörnsdóttir. mbl.is/Eyþór

Guðmundur Jónsson og Baldvin Elíasson í góðum félagsskap.

Guðmundur Jónsson og Baldvin Elíasson í góðum félagsskap. mbl.is/Eyþór

Guðný Gabríela Aradóttir, Anton Emil Albertsson og Karítas María Antonsdóttir.

Guðný Gabríela Aradóttir, Anton Emil Albertsson og Karítas María Antonsdóttir. mbl.is/Eyþór

Sigríður Elín Sigfúsdóttir og Katrín Friðriksdóttir.

Sigríður Elín Sigfúsdóttir og Katrín Friðriksdóttir. mbl.is/Eyþór

Stór hópur kvenna mætti í boðið.

Stór hópur kvenna mætti í boðið. mbl.is/Eyþór

Sigríður Júlía Bjarnadóttir og Björg Sigurðsson.

Sigríður Júlía Bjarnadóttir og Björg Sigurðsson. mbl.is/Eyþór

Ragnheiður Jónsdóttir, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Torfi Tulinius og Sigurgeir Steingrímsson.

Ragnheiður Jónsdóttir, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Torfi Tulinius og Sigurgeir Steingrímsson. mbl.is/Eyþór

Rannveig Tryggvadóttir, Ragnheiður Gröndal og Jóhanna María Eyjólfsdóttir.

Rannveig Tryggvadóttir, Ragnheiður Gröndal og Jóhanna María Eyjólfsdóttir. mbl.is/Eyþór

Það var góð stemmning í útgáfuboðinu.

Það var góð stemmning í útgáfuboðinu. mbl.is/Eyþór

Fólk á öllum aldri mætti í útgáfuboðið.

Fólk á öllum aldri mætti í útgáfuboðið. mbl.is/Eyþór

Sæunn las upp úr bókinni.

Sæunn las upp úr bókinni. mbl.is/Eyþór

Ragnheiður Gröndal tók lagið.

Ragnheiður Gröndal tók lagið. mbl.is/Eyþór

Gestir hlustuðu þegar systurnar sögðu frá bókinni.

Gestir hlustuðu þegar systurnar sögðu frá bókinni. mbl.is/Eyþór

Það myndaðist mikil stemmning í Neskirkju.

Það myndaðist mikil stemmning í Neskirkju. mbl.is/Eyþór

内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅