Fögnuðu útgáfu Stefnis með glans
Ritstjóri Stefnis, Kjartan Leifur Sigurðsson, opnaði flösku í tilefni útgáfunnar. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Port 9 skartaði sínu fegursta þegar Samband ungra sjálfstæðismanna bauð í útgáfuteiti vegna endurvakningar tímaritsins Stefnis.
„Stefnir – Tímarit um þjóðmál og menningarmál var um áratugaskeið eitt af rótgrónustu þjóðmálaritum landsins. Tímaritið var gefið út af Sambandi ungra sjálfstæðismanna í nokkrum tölublöðum á ári í fimm áratugi frá árinu 1950. Eftir aldamót dró smám saman úr útgáfunni þar til Stefnir hvarf að lokum af sjónarsviðinu,“ segir Júlíus Viggó Ólafsson, formaður SUS, og bætir við:
„Samband ungra sjálfstæðismanna hefur endurvakið útgáfu þessa sögufræga tímarits og nýtt tölublað fór í dreifingu um land allt í lok vikunnar í hvorki meira né minna en 60.000 eintökum.“
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, missir ekki af góðu teiti og lét að sjálfsögðu sjá sig og það gerir Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins, ekki heldur. Þar var líka myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar Magnússon og Oliver Nordquist, varaformaður Heimdallar.
Kjartan Leifur Sigurðsson, ritstjóri Stefnis, var í miklu stuði eins og sést á ljósmyndunum.
Rósa Guðbjartsdóttir, Jens Garðar, Kristín Lilja, Guðrún Hafsteinsdóttir og Emin Kadri hnefaleikamaður. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Geir Zoega og Magnús Benediktsson, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Tómas Þór varaþingmaður, Anton Berg, annar varaformaður SUS, og Stefanía Kolbrún, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Júlíus og Emin ræða við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Oliver Nordquist, varaformaður Heimdallar, með kærustu sinni Aðalbjörgu Emmu. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Vésteinn Örn, sérfræðingur í samskiptum hjá SFF, og Tinna Eyvindardóttir, varaformaður SUS. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Eva Sóldís Bragadóttir, grafískur hönnuður Stefnis, og Snæfríður Blær Tindsdóttir. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Hafrún Steingrímsdóttir, Davíð Ingi Ólafsson, Telma Þorvaldsdóttir og Salka Sverrisdóttir. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Hermann Nökkvi Gunnarsson, framkvæmdastjóri SUS, og Ragnar Sigurður, hagfræðingur Viðskiptaráðs. Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


























