Margrét hélt partí úti á Granda
Ingibjörg Svansdóttir, Elín Hrefna Þórðardóttir og Mjöll Einarsdóttir létu útgáfuhóf Margrétar Höskuldsdóttur ekki fram hjá sér fara. mbl.is/Karítas
Það var fullt út úr dyrum þegar Margrét Höskuldsdóttir las upp úr bók sinni Eldur í öskunni leynist í Bókabúð forlagsins úti á Granda.
Eldur í öskunni leynist er fjórða bók Margrétar Höskuldsdóttur og þriðja sagan um lögregluteymið Rögnu og Berg. Önnur sagan, Lokar augum blám, hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin árið 2025.
Eldgosið í Heimaey árið 1973 er í algleymingi og þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Fimmtíu árum síðar snýr eitt þeirra aftur og um svipað leyti finnast mannabein á Dynjandisheiði. Bergur er settur í málið en nýtur aðstoðar Rögnu á bak við tjöldin. Hverjum tilheyra beinin og af hverju virðist eldri kynslóðin í lögreglunni á Ísafirði treg til að rannsaka málið af fullum þunga? Þessum spurningum er svarað í æsispennandi bókinni.
Eins og sjá má á myndunum lagði fólk við hlustir þegar Margrét las upp úr bókinni og sagði frá spennubókinni.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



