Kvika kynnir óverðtryggð lán á föstum vöxtum
Samkvæmt vaxtasamanburði Aurbjargar eru þetta bestu kjörin á óverðtryggðum húsnæðislánum með föstum vöxtum til þriggja ára. mbl.is/Karítas
Auður, fjármálaþjónusta Kviku banka, býður nú í fyrsta sinn upp á óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til þriggja ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Vextirnir eru frá 8,60% og samkvæmt vaxtasamanburði Aurbjargar eru það bestu kjörin á óverðtryggðum húsnæðislánum með föstum vöxtum til þriggja ára.
Skiptir máli að vita hvaða vexti maður greiðir
Halldór Snæland, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku, segir fólk hafa tekið vel í það þegar Auður fór inn á innlánamarkaðinn. Það sama megi sjá nú með húsnæðislánin.
„Þegar fólk er að kaupa heimili eða endurfjármagna skiptir máli að vita hvaða vexti það greiðir næstu þrjú árin. Við viljum að fólk eigi kost á meiri vissu í mánaðarlegri greiðslubyrði sinni og það er ánægjulegt að Auður bjóði nú upp á þennan valkost á betri kjörum en hafa verið í boði,“ segir hann.
Valkostum fjölgar
Í tilkynningunni segir að húsnæðislán Auðar með breytilegum vöxtum hafi fengið góðar viðtökur frá því þau voru kynnt sumarið 2025.
„Með föstum vöxtum fjölgar valkostum hjá Auði og bankinn heldur áfram að sækja fram á húsnæðislánamarkaði með sérstaka áherslu á hagstæð óverðtryggð lán,“ segir í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗