Afhentu umfangsmikinn eldisbúnað
ELDI á Íslandi afhenti síðsumars umfangsmikinn eldisbúnað til fiskeldisfyrirtækisins ÍS47 ehf. á Flateyri.
Fram kemur á vef Hampiðjunnar að afhendingin hafi meðal annars náð til akkeris- og botnfestibúnaðar, lína, kerfisfestinga, bauja og ljósabúnaðar, auk fiskeldispoka, lúsapilsa og yfirbreiðsluneta fyrir fiskeldiskvíar.
„Áður en framleiðsla búnaðarins hófst fór fram hönnun og tæknigreining þar sem tekið var mið af aðstæðum á eldissvæðinu og kröfum norska staðalsins NS 9415 um búnað til sjóeldis,“ segir þar.
Markmiðið hafi verið að tryggja að búnaðurinn væri sniðinn að aðstæðum á svæðinu og uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til öryggis, styrks og áreiðanleika við sjóeldi.
Þá segir að undirbúningur, hönnun, framleiðsla og aðfangaöflun vegna afhendinganna hafi gengið samkvæmt áætlun og jafnframt tekist að standa við umsamin tímamörk varðandi flutning og afhendingu búnaðarins.
„Verkefnið er gott dæmi um hvernig sérþekking, framleiðslugeta og vöruframboð ólíkra fyrirtækja innan Hampiðjusamstæðunnar nýtast saman við afhendingu heildarlausna fyrir fiskeldi, allt frá hönnun og tæknilegri útfærslu til framleiðslu, aðfangaöflunar og afhendingar.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗