Landsréttur þyngdi dóm fyrir nauðgun eftir jólaboð
Landsréttur þyngdi dóm Ion Panaghiu í tveggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu þrisvar sömu nótt eftir jólaboð í herbergi hennar. Héraðsdómur hafði talið eitt skipti sannað og dæmdi hann í tveggja ára og sex mánaða fangelsi.
Konan sagði fyrir Landsrétti að hún fengi enn martraðir þar sem hún væri aftur stödd í herberginu.
Konan hafði boðið tveimur vinum í mat og drykk í herberginu sínu á gistiheimili í Kópavogi á jóladag 2022. Panaghiu, sem leigði einnig herbergi á gistiheimilinu, bættist síðar í hópinn. Landsréttur taldi að hún hefði gert honum skýrt að hún vildi aðeins vera vinur hans.
Konan mundi eftir að hafa verið inni hjá nágrannakonu sinni um kvöldið. Næst mundi hún eftir því að vakna með Panaghiu við hlið sér. Hún sagðist hafa reynt að koma honum út úr herberginu og sofnað aftur. Þegar hún vaknaði um morguninn fann hún til og tók eftir marblettum. Hún sýndi nágrannakonunni ummerkin og fór með henni til lögreglu. Konan fór á neyðarmóttöku Landspítalans sama dag.
Studdist við framburð hans sjálfs
Panaghiu gekkst við því að hafa haft samfarir við konuna en hélt því fram að þær hefðu verið með samþykki hennar. Landsréttur taldi þá frásögn ótrúverðuga. Konan hefði vegna ölvunar og svefndrunga hvorki getað veitt samþykki né spornað við því sem gerðist. Panaghiu hefði verið ljóst í hvaða ástandi hún var.
Við mat á því hversu oft hann braut gegn henni studdist Landsréttur einkum við framburð Panaghiu sjálfs hjá lögreglu og fyrir dómi. Hann lýsti endurteknum samförum og sagðist hafa farið út úr herberginu á milli. Lögreglumaður sem hafði skoðað upptökur úr eftirlitsmyndavélum taldi sig hafa séð hann fara að minnsta kosti þrisvar inn og út úr herberginu um nóttina. Upptökurnar höfðu eyðst sjálfkrafa úr tölvukerfi lögreglu en stuðst var við munnlegan framburð lögreglumanns af upptökunum.
Landsréttur þyngdi fangelsisrefsinguna um þrjá mánuði og staðfesti að Panaghiu skyldi greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur. Við ákvörðun refsingar var honum metið til hagsbóta að um 27 mánuðir liðu frá því að kæra barst lögreglu þar til ákæra var gefin út. Landsréttur taldi þann drátt úr hófi.
Gerði hlé á sálfræðimeðferð meðan málið var í gangi
Konan flutti af gistiheimilinu skömmu eftir áramót og síðar aftur til heimalands síns. Hún gaf skýrslu fyrir Landsrétti á fjarfundi og sagðist enn finna fyrir kvíða og ótta. Hún hafði leitað til sálfræðings eftir heimkomuna en gert hlé á meðferðinni. Henni fannst hún ekki geta haldið henni áfram meðan málið væri enn í gangi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗