Var nauðgað eftir mót: „Það fór bara allt í rugl“
Tíu ár eru í dag liðin frá því að Tinnu Óðinsdóttur, fyrrverandi landsliðskonu í fimleikum, var nauðgað af erlendum keppendum á heimsbikarmóti í Þýskalandi. Tinna var þá aðeins 22 ára gömul og segir atvikið hafa haft mun meiri áhrif á líf sitt en hún gerði sér lengi grein fyrir.
Hún þekkti gerendurna og hafði oft hitt þá á fimleikamótum, og átti eftir að hitta þá á fleiri mótum síðar meir. Það reyndist henni afar þungbært þrátt fyrir að hún reyndi að láta líta út fyrir að allt væri í lagi.
Hún þagði um það sem gerðist mánuðum saman, glímdi við mikla vanlíðan og reyndi að halda áfram að finna gleðina í fimleikunum sem höfðu átt hug hennar allan. Nú, áratug síðar, er hún enn að vinna úr afleiðingunum og hefur áttað sig á því að þessi erfiða reynsla hefur mótað margar ákvarðanir hennar í gegnum tíðina og í raun allt lífshlaupið.
„Ég var bara alltaf að reyna að ýta þessu burtu frá mér. Mig langaði ekki að vera stelpan sem lenti í þessu,“ segir Tinna í samtali við mbl.is.
„Í dag eru 10 ár síðan ég varð fyrir nauðgun“
Tinna, sem er í dag 32 ára og tveggja barna móðir, steig fram og sagði frá nauðguninni fyrir átta árum, í tengslum við MeToo-byltinguna. Í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá atburðinum birti hún færslu á Facebook þar sem hún gerði upp reynslu sína og þær afleiðingar sem hún hefur þurft að lifa með. Pistilinn ber yfirskriftina: „Í dag eru 10 ár síðan ég varð fyrir nauðgun.“
Hún segir uppgjörið nú vera allt annars eðlis en áður. Á sínum tíma hafi hún talið sig hafa unnið úr áfallinu og jafnvel verið stolt af því hversu auðvelt hún ætti með að ræða það. Nú geri hún sér hins vegar grein fyrir því að hún hafi að mörgu leyti verið að forðast að horfast í augu við afleiðingarnar.
„Ég held að það þurfi stundum að líða langur tími svo maður geri horft á eitthvað og sætt sig við hlutina. Ég held ég hafi aldrei sætt mig við þetta,“ segir Tinna.
Þagði um nauðgunina mánuðum saman
Atvikið átti sér stað í lokahófi eftir heimsbikarmót í fimleikum í Þýskalandi. Tinna var þá búsett í Danmörku en keppti fyrir íslenska landsliðið.
Eftir mótið komu keppendur saman til að fagna mótslokum, líkt og tíðkast á slíkum mótum. Tinna segir að margir keppendanna hafi þekkst árum saman og að mikill samgangur hafi verið milli þeirra á keppnisferðalögum.
Samkvæmið færðist yfir á hótelherbergi þar sem hópur karla og kvenna var saman kominn. Þar segist Tinna hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu þriggja spænskra keppenda. Einn þeirra hafi verið ólympíufari og verðlaunahafi á Ólympíuleikum.
Eftir atvikið ferðaðist Tinna ein heim til Danmerkur og reyndi að gleyma því gerst hafði. „Ég segi engum frá þessu í fimm mánuði eða eitthvað, ekki einu sinni bara foreldrum mínum.“
Á þessum tíma voru fimleikarnir miðpunkturinn í lífi hennar. Hún hafði helgað sig íþróttinni stórum hluta ævinnar og vildi ekki láta það sem gerðist eyðileggja ferilinn.
„Þetta er bara það sem ég lifði fyrir og ég vildi ekki láta hann eða þá skemma það fyrir mér.“
Skömmu síðar tók hún þátt í Evrópumóti þar sem hún þurfti að hitta einn mannanna aftur, sem hún segir hafa tekið mikið á.
Héldu að hún væri í neyslu
Tinnu fannst á sínum tíma að hún væri að tækla aðstæður vel. Þegar hún lítur til baka horfir málið öðruvísi við henni.
„Þá leið mér eins og þetta hefði allt gengið æðislega en eftir á að hyggja þá gekk þetta hræðilega. Það var mikil breyting á hegðun hjá mér sem var út af vanlíðan. Ég var svo ung en fannst ég svo fullorðin að hafa svona góða stjórn á öllu.“
Hún hafði áður glímt við átröskun sem tók sig aftur upp og hún hugsaði ekki nógu vel um sjálfa sig.
„Það fór bara allt í rugl,“ segir Tinna.
Breytingarnar voru svo miklar að foreldrar hennar óttuðust að hún væri farin að neyta fíkniefna.
„Foreldrar mínir héldu að ég væri byrjuð í neyslu. Það var af því hegðunin hjá mér var svo breytt.“
Hún segir að á þessum tíma hafi hún fyrst og fremst reynt að einbeita sér að fimleikunum og að standa sig vel, þrátt fyrir að líða afar illa. Það gerði líka stöðuna enn erfiðari að hún bjó ein í Danmörku, fjarri fjölskyldunni.
Talið of langsótt að fara með málið lengra
Þegar Tinna greindi loks frá nauðguninni leitaði hún aðstoðar og fékk meðal annars stuðning frá Fimleikasambandi Íslands, sem hún segir hafa staðið vel við bakið á sér.
Málið hafi hins vegar verið flókið þar sem hún var búsett í Danmörku, keppti fyrir Ísland, gerendurnir voru spænskir og atvikið átti sér stað í Þýskalandi.
Að sögn Tinnu sendi Fimleikasamband Íslands erindi til spænska fimleikasambandsins og útvegaði henni jafnframt lögfræðilega ráðgjöf.
„Við töluðum við lögfræðing sem fimleikasambandið útvegaði, sem sagði að þetta væri eiginlega of langsótt,“ segir Tinna og var þá vísað til þess hve aðstæðurnar voru flóknar og langur tími hefði liðið frá atvikinu.
„Átti ég þetta kannski skilið?
Eftir að Tinna sagði foreldrum sínum frá því sem gerðist hóf hún sálfræðimeðferð í Danmörku og lagði mikla vinnu í að vinna úr áfallinu.
Hún fór meðal annars í gegnum hugræna atferlismeðferð og sinnti henni af mikilli samviskusemi, en hún sá það síðar að slík meðferð virkaði ekki fyrir þetta áfall.
„Ég sinnti þessu mjög samviskusamlega með þessum sálfræðingi, var hjá henni annan hvern dag og ég var rosalega mikið að sinna þessu.“
Um tíma taldi hún sig hafa náð að vinna úr reynslunni. Hún gat rætt opinskátt um nauðgunina og fannst hún að mestu hafa lagt hana að baki sér.
Á undanförnum árum hafi hún þó farið að átta sig á því að afleiðingarnar væru enn til staðar og að fyrri meðferð hefði ekki skilað þeim árangri sem hún hafði talið.
Þá hafa sótt að henni hugsanir um hvort hún hafi átt ofbeldið skilið.
„Oft hafa poppað upp hugsanir, sem ég veit að er ljótt að segja um sjálfa sig, en átti ég þetta kannski skilið? Þá áttaði ég mig á því að ég væri ekki búin að vinna úr þessu eins og best væri að gera.“
„Vill ekki vera fórnarlamb“
Tinna segir að með árunum hafi ákveðin atriði jafnvel orðið erfiðari viðureignar.
Þegar hún var 22 ára hafi henni fundist hún fullorðin og sjálfstæð. Í dag horfi hún hins vegar allt öðrum augum þennan aldur. Hún áttar sig á því í dag hvað hún var í raun ung.
Hún nefnir að frænka hennar sé nú að nálgast sama aldur og hún var þá. Það hafi fengið hana til að sjá reynsluna í nýju ljósi.
Þessi nýja sýn hafi einnig hjálpað henni að skilja betur ýmsar ákvarðanir sem hún tók á árunum eftir nauðgunina.
Lengi vel hafi hún neitað að tengja erfiðleika í lífi sínu við ofbeldið. Hún hafi ekki viljað líta á sig sem fórnarlamb eða láta atburðinn skilgreina sig.
„Maður vill ekki vera fórnarlamb sem lenti í þessu,“ segir Tinna. „Ég var í mjög mikilli afneitun með það að ég vildi ekki kenna þessu um,“ bætir hún við.
Nú sjái hún hins vegar ákveðið mynstur í eigin hegðun og ákvörðunum sem hún hafi ekki áður gert sér grein fyrir.
„Ég svona átta mig betur á því núna þetta var partur af öllum mínum ákvörðunum og öllu mínu sem ég hef gert.“
Hafa gefið mest og tekið mest
Tinna segir að afleiðingar nauðgunarinnar hafi einnig haft mikil áhrif á viðhorf hennar til fimleikanna.
Hún keppti með íslenska landsliðinu um tíu ára skeið, íþróttin var stór hluti af sjálfsmynd hennar og veitti henni ótal tækifæri. Samhliða því tengjast fimleikarnir einni erfiðustu reynslu lífs hennar.
„Ég held að fimleikar hafi kannski gefið mér mest í lífinu mínu en þeir hafa líka tekið mest frá mér.“
Tinna segist hafa átt erfitt með að gefa sig að íþróttinni eftir að keppnisferlinum lauk. Þar eigi sár reynslan stóran þátt í máli. Hún hafi aldrei náð að kveðja þennan kafla lífs síns með þeim hætti sem hún hefði viljað.
Enn þann dag í dag reynist henni erfitt að fylgjast með stórmótum í sjónvarpi.
„Ég fæ einhverja ónotatilfinningu bara að horfa á heimsmeistaramót í sjónvarpinu.“
Hún segir sárt að finna fyrir þessum tilfinningum gagnvart einhverju sem var svo stór hluti af lífi hennar.
Meðgöngur og fæðingar litaðar af reynslunni
Áhrif nauðgunarinnar hafa þó ekki einskorðast við íþróttaferilinn eða fyrstu árin eftir atvikið.
Tinna er í dag tveggja barna móðir og segir að reynslan hafi meðal annars haft áhrif á meðgöngur hennar og fæðingar.
Þessi dagur hefur vakið upp sterkar tilfinningar hjá Tinnu. Hún segir dagsetninguna alltaf hafa verið erfiða og að stundum hafi jafnvel allur nóvembermánuður verið litaður af kvíða og vanlíðan, sem sé leiðinlegt því hún á afmæli í byrjun mánaðarins.
Þetta hafi þó verið misjafnt í gegnum árin. Stundum hafi hún lítið hugsað um nauðgunina en á öðrum tímabilum hafi minningarnar og afleiðingarnar verið mun meira áberandi.
Undanfarna mánuði hafi hún verið að velta reynslunni mikið fyrir sér og reyna að finna út hvernig best sé að lifa með henni. Það hafi hjálpað að setja hugsanir sínar í orð og deila þeim opinberlega.
„Mér getur alveg liðið vel“
Tinna segist jafnframt hafa fengið fjölda skilaboða frá konum sem hafi upplifað sambærilega hluti. Einnig hafi ungar stúlkur sem litu upp til hennar á fimleikaárunum brugðist við færslunni.
Henni þykir vænt um þau viðbrögð, ekki síst vegna þess að hún hefur gert miklar kröfur til sjálfrar sín sem fyrirmyndar.
Hún segist nú vera að læra að sýna sjálfri sér meiri skilning. Þrátt fyrir allt sem gerðist sé hún stolt af því sem hún hafi áorkað í lífinu.
Hún vilji ekki lengur líta svo á að hún þurfi annaðhvort að vera búin að vinna sig fullkomlega út úr áfallinu eða vera föst í því.
„Mér getur alveg liðið vel,“ segir Tinna.
„Ég ætla ekki að hlaupa í burtu frá þessu lengur heldur, maður má alveg hugsa um þetta og finnast þetta erfitt stundum en svo má manni líka bara að líða vel.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





