Hálka á Suðurlandi en yfir frostmarki í höfuðborginni
Innlent | mbl | 19.11.2026 | 16:25
Ekki varð af frostrigningu og flughálku á höfuðborgarsvæðinu eins og varað var við að gæti raungerst í ábendingum veðurfræðings Vegagerðarinnar í morgun.
Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir úrkomuna vera nýkomna yfir á höfuðborgarsvæðinu en að hiti hafi farið upp fyrir frostmark áður en hún skall á.
„Þannig að úrkoman sem er núna er ekki strangt til tekið frostrigning en hins vegar er frost við jörð. Þar getur auðvitað myndast hálka,“ segir Birgir í samtali við mbl.is.
Hálka á Suðurlandi
Í ábendingum veðurfræðings Vegagerðarinnar var einnig varað við því að frostrigning og flughálka gætu orðið nærri Selfossi og í lágsveitum Suðurlands.
Birgir segir það virðast sem svo að hálka sé víða á Suðurlandi en að um litla úrkomu sé að ræða.
„En samt í svona hægum vindi þá þarf mjög lítið til þess að það verði flughált.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗