Liverpool endurheimtir lykilmenn fyrir stórleikinn

Virgil van Dijk og Ryan Gravenberch eru klárir í slaginn.

Virgil van Dijk og Ryan Gravenberch eru klárir í slaginn. AFP/Paul Ellis

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur endurheimt nokkra lykilmenn fyrir stórleikinn gegn Manchester United sem fram fer á Anfield í Liverpool í 12. umferð úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn kemur.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Virgil van Dijk, Ryan Gravenberch, Dominik Szoboszlai og Alexander Isak tóku allir þátt í æfingu liðsins í dag.

Van Dijk og Gravenberch hafa báðir verið að glíma við smávægileg meiðsli og voru ekki með hollenska landsliðinu í nýliðnum landsleikjaglugga.

Þá hefur Szoboszlai einnig verið að glíma við meiðsli en Sky Sports greinir frá því að þeir séu allir klárir í slaginn fyrir stórleikinn gegn United.

Liverpool er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar með 18 stig en United er í 18. sætinu og fallsæti með 8 stig.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab