Liverpool endurheimtir lykilmenn fyrir stórleikinn
Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur endurheimt nokkra lykilmenn fyrir stórleikinn gegn Manchester United sem fram fer á Anfield í Liverpool í 12. umferð úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn kemur.
Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Virgil van Dijk, Ryan Gravenberch, Dominik Szoboszlai og Alexander Isak tóku allir þátt í æfingu liðsins í dag.
Van Dijk og Gravenberch hafa báðir verið að glíma við smávægileg meiðsli og voru ekki með hollenska landsliðinu í nýliðnum landsleikjaglugga.
Þá hefur Szoboszlai einnig verið að glíma við meiðsli en Sky Sports greinir frá því að þeir séu allir klárir í slaginn fyrir stórleikinn gegn United.
Liverpool er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar með 18 stig en United er í 18. sætinu og fallsæti með 8 stig.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗