Dóri DNA er kominn með stílista

Dóri DNA bætir við fimm sýningum á uppistandinu Feita hjartað í Tónabíói. Þótt hann hafi efast um eigin húmor áður en sýningin leit dagsins ljós segist hann aldrei hafa verið jafn stoltur af eigin gríni. mbl.is/Árni Sæberg

Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, bætir við fimm sýningum á uppistandi sínu Feita hjartanu í Tónabíói. Þótt hann hafi óttast að vera búinn að missa húmorinn áður en sýningin fór á svið segist hann aldrei hafa verið jafn stoltur af eigin gríni.

Feita hjartað var frumsýnt í janúar og gekk fyrir fullu húsi í Austurbæ fram á vor. Síðan hefur Halldór farið með sýninguna til Egilsstaða, Akureyrar og Keflavíkur og er ferð á Selfoss einnig á dagskrá í lok mánaðar. Nú snýr hann aftur á svið í Reykjavík.

„Eftir miklar áskoranir ætla ég að halda áfram með hana í Tónabíói. Ég er með fimm aukasýningar í Reykjavík og það hefur gengið prýðilega að selja á þær. Ég hlakka til að klára Feita hjartað hérna í bænum,“ segir Halldór í samtali við Smartland.

Halldór segist flytja sama uppistandið í um ár og þróa efnið áfram á meðan.

„Hún verður alltaf betri og betri eftir því sem maður flytur hana oftar,“ segir Halldór, sem hyggst snúa sér að nýju efni að loknum aukasýningunum.

„Um leið og ég lýk síðustu sýningunni fer ég að huga að nýju efni og hætti að reyna að gera þetta efni betra.“

Hélt að húmorinn væri horfinn

Áður hafði Halldór verið með sólósýninguna Engar takmarkanir, sem var að hluta innblásin af lífinu á tímum samkomutakmarkana. Þegar kom að því að setja saman Feita hjartað gerði efinn hins vegar vart við sig.

„Ég ætlaði að byrja með hana síðasta haust en mér brást kjarkur. Ég var alveg handviss um að ég væri bara búinn að missa húmorinn.“

Hann tók að safna saman efninu og prófa það, meðal annars í Þjóðleikhúskjallaranum. Þá fékk hann vini og kunningja til að hlusta, þar á meðal Steinda Jr., Óla Té, Lóu Björk Björnsdóttur útvarpskonu og Jóhann Kristófer Stefánsson tónlistarmann.

„Ég las þetta allt fyrir þau og þá fékk ég gusu af sjálfsöryggi. Svo hvarf það reyndar aftur og það var ekki ljóst fyrr en á frumsýningu að ég væri með eitthvað í höndunum.“

Viðtökurnar hafa verið vonum framar en Halldór segir fjölda seldra miða þó ekki aðalatriðið.

„Sýningin er ógeðslega góð. Ég hef ekki orðið jafn stoltur af neinu sem ég hef gert í gríni. Þetta er hispurslaus sýning og ég næ að staðsetja mig þar sem ég vil staðsetja mig í gríni, á mörkum þess sem má en einhvern veginn líka segja það sem á. Ég er ógeðslega ánægður með þetta og held að það sé eitthvað fyrir alla þarna.“

Fékk fyrst hjálp frá vini við að velja fötin

Fatastíll Halldórs hefur einnig vakið athygli undanfarið. Sjálfur segist hann þó eiga erfitt með að velja á sig föt og viðurkennir fúslega að aðrir eigi sinn þátt í vel heppnuðum klæðaburði hans.

„Ég var valinn best klæddi maðurinn á Vísi og þar stóð að ég hefði verið í svo smart fötum í Ein stjarna-þáttunum. Staðreyndin er sú að ég sendi Jóhanni Kristófer vefsíðu og sagði: „Geturðu valið á mig föt þarna?“ Ég pantaði allt sem hann valdi og það voru fötin sem ég var í í þáttunum.“

Viðurkenningin sannfærði Halldór um að best væri að láta aðra sjá um fatavalið.

„Þá fattaði ég að ég gæti þetta greinilega ekki. En Jóhann er svo nútímalegur að ég er líka smá hræddur við hann.“

Halldór auglýsti því eftir stílista í hlaðvarpinu Betri en flestir, sem hann heldur úti með Danna Deluxe og Kjartani Atla Kjartanssyni. Í kjölfar auglýsingarinnar hafði Alexander Sindrason samband og lýsti áhuga á verkefninu. Smartland hefur áður fjallað um Alexander, en viðtal við hann birtist í júlí.

„Við hittumst og ég held að ég sé fyrsta stílistaverkefnið hans. Síðan þá er hann bara orðinn starfandi stílisti.“

Fyrir sýningu hlaðvarpsins fyrir framan áhorfendur hafði Alexander ákveðnar hugmyndir um klæðaburð Halldórs.

„Hann sagði við mig fyrir sýninguna okkar: „Ég er með geðveikt lúkk fyrir þig,“ og sendi mér skissur af lúkkinu sem ég átti að vera í. Ég sagði bara: „Já, ókei,“ enda drullufertugur.“

Fatastíll Dóra DNA hefur vakið athygli en hann viðurkennir fúslega að þurfa aðstoð við fatavalið. Hann hefur því fengið Alexander Sindrason til liðs við sig sem stílista og er hæstánægður með samstarfið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vill að heimurinn viti að hann sé að hlusta

Halldór mælir með því að fá aðstoð við fatavalið og segir að með því að fylgja tískunni megi sýna að maður sé í takt við tímann. Hann rifjar upp sögu sem hefur setið í honum.

„Ég heyrði þetta þegar vínbóndi var spurður af hverju hann væri að gera appelsínuvín. Hann sagði sögu um breskan aðalsmann sem klæddi sig alltaf eftir nýjustu tísku og var spurður: „Af hverju þarftu alltaf að klæða þig eftir nýjustu stefnum og straumum?“ Þá sagði hann: „Af því ég vil að heimurinn viti að ég sé að hlusta.““

Hann segist sjálfur vilja halda í þann hugsunarhátt eftir því sem árin líða.

„Þetta heilræði hefur fylgt mér. Mig langar að vera töff, sérstaklega eftir því sem ég verð eldri og missi sjálfsöryggið á því að vera ég.“

Rapphljómsveit varð að hlaðvarpi

Hlaðvarpið Betri en flestir markar nýjan kafla í samstarfi Halldórs, Danna Deluxe og Kjartans Atla. Þeir voru saman í rapphljómsveitinni Bæjarins bestu árið 2002 og sækja nafn hlaðvarpsins í fyrsta lag sveitarinnar.

Á dögunum stigu þeir á svið fyrir framan áhorfendur og birti Smartland myndaveislu frá viðburðinum. Þar klæddist Halldór fötum sem Alexander hafði valið.

„Við ákváðum að prófa að taka upp einn prufuþátt og síðan þá hefur gengið mjög vel og við erum mjög þakklátir fyrir viðtökurnar,“ segir Halldór.

Hann segir ákveðinn hóp hafa myndast í kringum hlaðvarpið og samstarfið hafa veitt sér mikla ánægju.

„Þetta hefur, svo ég segi sannleikann, gert lífið miklu skemmtilegra,“ segir Halldór léttur í lund að lokum.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅