Segir fólk halda að hún sé „snobbuð tík“
Ísabella Klara Munroe nýtur sveitalífsins með manni sínum og fjórum gæludýrum. Fram undan eru framkvæmdir við draumaheimilið en hana dreymir einnig um háskólanám og barneignir. Ljósmynd/Aðsend
Ísabella Klara Munroe, áhrifavaldur og hótelstarfsmaður, kann vel að meta sveitasæluna í dreifbýlinu fyrir utan Selfoss.
Þar býr hún með manni sínum, tveimur köttum og tveimur hundum í 130 ára gömlu húsi sem áður stóð við Laugaveg.
Nú stendur til að stækka húsið og gera það að draumaheimili þeirra. Fram undan sér hún fyrir sér háskólanám og fjölskyldulíf, en umfram allt vill hún fara sínar eigin leiðir.
„Lífið mitt er ótrúlega fallegt,“ segir Ísabella í viðtali við Smartland.
Ísabella hefur gaman af því að vera í kringum fólk og segist kunna vel við að vera miðpunktur athyglinnar. Samsett mynd
Hún ólst upp í Garðabæ og Kanada, þar sem hún á enn fjölskyldu, og lýsir sér sem opinni manneskju sem sækir í félagsskap annarra.
„Mér finnst gaman að vera miðpunktur athyglinnar og vera í kringum fólk, hitta fólk og tala við fólk.“
Sem barn hafi hún þó verið hógværari og sjálfri sér nóg. Hún hafi haft gaman af því að vera hluti af hópnum en líka kunnað vel að meta stundirnar með sjálfri sér.
„Ég hef alltaf verið frekar fyndin og fundist gaman að vera með í hópum, en ég kunni líka alveg að meta minn eigin tíma þegar ég var yngri.“
Ísabella varð fyrir einelti í grunnskóla og segist snemma hafa lært að ekki væru allir sammála henni eða skoðunum hennar. Hún hafi því þurft að læra að standa með sjálfri sér. Aðspurð hvort sú reynsla hafi enn áhrif á hana er svarið afdráttarlaust.
„Nei, ég hef unnið vel úr þessum málum.“
Fann fyrir öryggi heima
Ísabella er trans kona og segist frá fyrstu tíð hafa fundið fyrir því hver hún væri, þótt hún hafi lengi vel ekki haft orð yfir þá upplifun.
Hvenær fórstu að átta þig á kynvitund þinni?
„Alveg frá því ég man fyrst eftir mér. Ég hef alltaf verið eins og ég er, en ég vissi ekki alveg hvað það þýddi. Ég vissi ekki alveg hvað þetta var fyrr en ég var komin yfir tvítugt,“ segir Ísabella.
Á unglingsárunum fór hún að prófa sig áfram með förðun og fatnað. Hún og systir hennar, sem er þremur árum yngri, höfðu gaman af því að gera sig fínar saman og segir Ísabella þær stundir hafa verið góða leið til að tengjast.
„Ég fann fyrir öryggi á heimili mínu úti í Kanada til þess að gera það sem mig langaði. Ég fann mig í því að farða mig og velja falleg föt. Ég hef alltaf haft ótrúlega mikinn áhuga á tísku og hönnun, verið frekar listræn og sótt í þessa hluti. Þegar ég var 16 ára prófaði ég að farða mig í fyrsta skipti og það var geggjað.“
Ísabella segist alltaf hafa vitað hver hún væri, þótt hún hafi lengi ekki haft orð yfir þá upplifun. Heima í Kanada fann hún fyrir öryggi til að prófa sig áfram með förðun og fatnað. Ljósmynd/Aðsend
Frelsið í sveitinni
Í dag starfar Ísabella á hótelinu Frost og Funa í Hveragerði. Hún segir samskiptin við gestina stóran þátt í því hversu vel henni líði í vinnunni.
„Ég dýrka vinnuna mína. Ég elska að hitta nýtt fólk á hverjum degi, vera í fallegu umhverfi, þjóna fólki og veita því góða upplifun. Mér finnst svo skemmtilegt að fólk sé að koma og eyða peningunum sínum í frí og að ég geti verið ákveðinn hluti af því.“
Heima fyrir taka dýrin fjögur á móti henni og sveitalífið á vel við hana.
„Ég er ótrúlega mikill dýravinur. Ég á tvo ketti og tvo hunda og bý úti í sveit, í húsi sem ég og maðurinn minn keyptum. Ég elska að vera hérna. Ég er með nánast enga nágranna og allt það pláss sem ég þarf, en get svo farið í bæinn þegar ég þarf á því að halda,“ segir hún.
Frelsið felist þó í fleiru en víðáttunni í kringum heimilið. Ísabella segir einnig gott að hafa svigrúm til að vera hún sjálf í sambandinu.
„Það er mjög mikið frelsi í mínu lífi. Ég á mjög góðan mann og fæ að vera eins og ég vil vera. Við erum búin að vera samferða í að verða sex ár og stöndum núna í framkvæmdum. Við erum að fara að byggja draumahúsið okkar og það er ótrúlega skemmtilegt.“
Húsið á sér langa sögu en það stóð áður við Laugaveg og var flutt í sveitina fyrir utan Selfoss. Nú ætla þau að stækka það og koma sér enn betur fyrir.
Ísabella og maður hennar hyggjast stækka 130 ára gamalt hús sitt og gera það að draumaheimili sínu. Húsið á sér langa sögu en það stóð áður við Laugaveg og var síðar flutt í sveitina fyrir utan Selfoss. Ljósmynd/Aðsend
Kann betur að meta einkalífið
Ísabella var áður á OnlyFans en hefur lokað þeim kafla í lífi sínu. Hún horfir þó sátt til baka og segir frelsið til að ráða vinnunni sjálf hafa verið meðal þess sem heillaði hana.
„Mér fannst þetta alveg æðislegur tími í mínu lífi, en ég er líka mjög fegin að hann sé búinn. Ég var miklu opnari hér áður fyrr en kann betur að meta einkalíf mitt núna. Ég sé ekki eftir neinu, en ég kann rosalega vel að meta hvernig hlutirnir eru í dag.“
Hún segir tímabilið hafa verið skemmtilegt og gefandi að geta unnið fyrir sjálfa sig með þeim hætti sem hentaði henni.
Er þá útilokað að þú snúir aftur á OnlyFans?
„Já, mig langaði bara að prófa þetta á sínum tíma og það gekk vel. Ég tek mér oft eitthvað fyrir hendur og ef mér gengur vel í því þá er markmiðinu náð.“
Ísabella hefur lokað OnlyFans-kaflanum í lífi sínu og kann betur að meta einkalífið en áður. Ljósmynd/Aðsend
Horfir til háskólanáms og barneigna
Ísabella lýsir sér sem opinni og félagslyndri manneskju en verður þó oft vör við að fólk hafi myndað sér aðra skoðun á henni áður en það kynnist henni.
„Ég fæ ótrúlega oft að heyra að fólk haldi að ég sé þessi kalda týpa eða svona snobbuð tík, ef svo má að orði komast.“
Þegar talið berst að framtíðinni segist Ísabella vilja fara í háskóla, eignast börn og halda áfram að byggja upp lífið með manni sínum.
„Mig dreymir um að stofna fjölskyldu og byggja upp líf. Stækka þetta hús, koma okkur vel fyrir og gera þetta hefðbundna, fara í háskóla og eignast börn. Fara í normið en samt reyna að gera það á minn hátt,“ segir hún að lokum.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/40/1684061.jpg)






