„Það var stundum bara tómt í ísskápnum“

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir er gestur í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim. mbl.is/Marta María

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir segir að skilnaður foreldra hennar hafi gjörbreytt lífi hennar þegar hún var tvítug. Hún hafði alist upp á góðu heimili í Fossvoginum en eftir stormasaman skilnað foreldranna stóð hún skyndilega frammi fyrir fjárhagslegri óvissu og erfiðleikum. Hún segir reynsluna hafa kennt sér að gefast aldrei upp. Þetta kemur fram í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim. 

Þórdís ólst upp í stórum systkinahópi í Fossvoginum og segir æskuárin hafa verið skemmtileg. Hún var næstelst fimm systkina og lýsir sjálfri sér sem miklum prakkara. Foreldrar hennar voru ólíkir einstaklingar. Faðir hennar var tannlæknir og móðir hennar hafði lengi verið heimavinnandi áður en hún fór út á vinnumarkaðinn. Þórdís var stödd erlendis sem skiptinemi þegar hjónaband foreldra hennar fór leystist upp. Hún segir að systkini hennar hafi reynt að hlífa henni við því sem var að gerast heima á Íslandi. Þegar foreldrarnir komu í heimsókn til hennar áttaði hún sig hins vegar á því að eitthvað alvarlegt væri að.

„Þetta kom algjörlega flatt upp á mig,“ segir Þórdís.

Skyndilega breyttist allt

Þegar hún sneri heim um sumarið var lífið gjörbreytt. Þórdís og yngri systir hennar, Björg, fluttu saman í leiguíbúð á meðan foreldrar þeirra tókust á. 

„Það var stundum bara tómt í ísskápnum,“ segir Þórdís þegar hún rifjar upp þennan tíma.

Hún segir að það hafi verið mikið áfall að fara úr tiltölulega öruggu umhverfi yfir í aðstæður þar sem jafnvel þurfti að hafa áhyggjur af daglegum nauðsynjum. Þrátt fyrir erfiðleikana hélt hún áfram að stefna að því að verða læknir.

Hún náði ekki inntökuprófinu í læknisfræði í fyrstu tilraun en ákvað að reyna aftur. Í seinna skiptið komst hún inn með góðum árangri.

Þórdís segir að erfiðleikarnir hafi á vissan hátt hert hana.

„Þá svona fær maður einhvern svona einhverja brynju og bara hugsar sko: Já, ég get þetta.“

Hún telur að þessi reynsla hafi haft mikil áhrif á það hvernig hún tekst á við áskoranir í lífinu og segir að hún hafi alltaf haft sterka þörf fyrir að sanna fyrir sjálfri sér að hún geti náð þeim markmiðum sem hún setur sér.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is, á Apple Podcasts og Spotify. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅